Fara í efni

Saffranhlaupið, 28. maí - nýtt hlaup á hlaupadagatalinu

Hver vill ekki hlaupa 5km hratt hlaup á nánast marflatri braut, og hlaupið er meira að segja FRÍ vottað, já og svo verður partý á eftir !
Saffran og Ultraform bjóða upp á hratt og flatt 5km hlaup
Saffran og Ultraform bjóða upp á hratt og flatt 5km hlaup

Saffranhlaupið verður haldið í fyrsta sinn fimmtudaginnn 28. maí næstkomandi kl. 19:00.

Í samstarfi við Ultraform bjóðum við upp á FRÍ-vottað 5 kílómetra partýhlaup á marflatri braut í Gufunesi með aðeins 23 m hækkun.

Sameiginleg upphitun hefst kl 18:30 í Ultraform sem er staðsett að Gylfaflöt 10 í Grafarvogi. Hópurinn skokkar rólega saman þaðan og að rásmarki í Gufunesi (1,6km). Einnig er hægt að mæta beint að rásmarki.

Í Ultraform verður hægt að nota salerni sem eru ekki til staðar við rásmark.

Hér má sjá kort af leiðinni sem er einföld og flott.

- https://maps.app.goo.gl/qLVRJ62Y4kJkC8Xq8

Eftir hlaupið getur fólk tekið niðurskokkið aftur að Ultraformi þar sem verða léttar veitingar, stuð og stemning.

Hlaupaleið og GPS track: https://connect.garmin.com/app/course/426165055