Fara í efni

Sætkartöflusnakk

Þessar eru gómsætar einar og sér eða til dæmis með guacamole.
Sætkartöflusnakk
Sætkartöflusnakk

Þær eru margar uppskriftirnar sem ég hef rekist á af sætkartöflusnakki. Og nokkrar sem ég hef prófað.

Oftar en ekki hefur ,,snakkið” komið út úr ofninum mjúkt, eða það sem verra er, allt of stökkt (lesist: brunnið). Þannig að ég ákvað að prófa mig áfram. Stillti ofninn á 120°C og hófst handa. 

 

 

 

 

 

Innihaldsefni:
1 sæt kartöfla
Svolítil sletta af ólífuolíu
Salt & Pipar

 

Sætkartöflusnakk

Aðferð:
Uppskriftin er í sjálfu sér ekki flókin, en þetta er þó frekar tímafrekt verkefni. Að minnsta kosti fyrir þá sem eru svipað smámunasamir og ég. Þess vegna er þetta tilvalið dund á sunnudegi. Fyrsta skrefið er að skera sætu kartöfluna. Þetta er hægt að gera í matvinnsluvél, með ostaskerara, með hníf eða með hvers konar undratæki sem þið lumið á. Sjálf notaði ég fínu, fínu matvinnsluvélina mína (takk, mamma og pabbi) og sneiddi kartöfluna á no-time. Það ber að taka fram að það má afhýða kartöfluna. Það má líka hafa hýðið á, ef þið viljið. Ég tók það af. Þegar kartaflan hefur verið sneidd er ólífuolíu skvett ofan í skálina ásamt dass af salti og pipar og kartöflunni velt svolítið. 

Sætkartöflusnakk

Þá byrjar tricky parturinn. Eða svona næstum því. Þó hann sé voðalega einfaldur. Kartöflusneiðunum er raðað einni af annari á bökunarpappír, á bökunarplötu. Það má raða þeim þétt, en ekki ofan á hverja aðra. Platan er þá sett í ofn. Ég bakaði kartöflurnar með eftirfarandi hætti og það kom ekki ein einasta sneið brennd út úr ofninum:

  • 10 mín við 120°C – Platan tekin út og öllum sneiðum snúið við. Hverri af annari. Snúið plötunni 180° og setjið hana aftur inn í ofn.
  • 10 mín við 120°C – Platan tekin út og öllum sneiðum snúið við, aftur. Plötunni aftur snúið og sett inn í ofn. 
  • 5 mín við 120°C – Platan tekin út og… 
  • 5 mín við 120°C – Platan tekin út og.. 
Sætkartöflusnakk
 
Að þessum tíma liðnum ættu allar flögurnar að vera orðnar þurrar og stökkar. Ef þær eru ennþá blautar, þá þarf að setja þær aftur inn. Og svo aftur. Og aftur. Þar til þær eru crispy og delicious. Ég færði því næst flögurnar yfir á aðra plötu og lét þær kólna áður en ég setti þær í skál. Þessar eru gómsætar einar og sér eða með guacamole (sjá uppskrift á blogginu).