Piccolotómatar, litlir en gómsætir
Garðyrkjustöðin Friðheimar hóf heilsársræktun á Piccolotómötum haustið 2012, en þeir eru með bragðmestu tómataafbrigðum þessa heims. Piccolotómatar eru kirsuberjatómatar og er plantan ákaflega vinnufrek og kröfuhörð á allar ræktunaraðstæður en ef rétt er haldið á spöðunum skilar það sér í bragðinu.
Piccolotómatar eru svo sætir og bragðgóðir að jafnvel þeir sem borða ekki tómata þykja þeir góðir!
Geymsla
Tómatar eru ákaflega viðkvæmir fyrir kæliskemmdum og þá má ekki geyma í kæli. Besti geymsluhiti tómata er 10-12°C. Tómatar sem verða fyrir kæliskemmdum verða fljótt linir og bragðlitlir, því er ekki gott að geyma þá í ísskápnum.
Mjög gott er að geyma tómata á eldhúsborðinu því þá getur heimilisfólkið nartað í einn og einn tómat. Krakkar borða grænmeti líka miklu frekar ef það er haft fyrir framan þau.
Ekki er gott að láta tómata liggja nálægt blaðmeti (salati), gúrkum og öðrum afurðum.
Notkun
Piccolotómatar eru litlir og henta vel í sallöt og góðir sem snakk. Flestir vita hvernig nota á tómata, þá má nota á svo margvíslegan hátt að hér er vart rými nema til að minnast á það allra helsta. Þeir henta vel í hrásalat, ofan á brauð og í súpur og sósur. Þeir eru góður hráir en einnig má sjóða þá og steikja eða baka með fyllingu. Auðvelt er að afhýða þá þegar búið er að dýfa þeim í sjóðandi vatn í 20-30 sekúndur.
Má frysta tómata?
Já, en hafa verður í huga að eftir frystingu er einungis gott að nota þá í soðna rétti á sama hátt og niðursoðna tómata.
Hvaða hluta er hægt að borða?
Allur tómaturinn er ætur nema bikarblöðin sem er ávallt búið að taka af íslenskum tómötum áður en þeir koma í verslanir.
Næringarríkir
Tómatar eru vítamínríkir, einkum er mikið af A- og C-vítamíni í þeim, en auk þess eru þeir ríkir af steinefnum og ávaxtasýru.
|
Innihald í 100 g |
Vatn 94 g |
|
Næringargildi í 100 g |
|
|
Orka |
74 kj |
|
17 kcal |
|
|
Fita |
0,3 g |
|
Þar af mettuð |
0 g |
|
Kolvetni |
2,1 g |
|
Þar af sykurtegundir |
2,1 g |
|
Trefjar |
1,8 g |
|
Prótein |
0,8 g |
|
Salt |
0 g |
|
NV* |
||
|
C vítamín |
15,8 mg |
20% |
* Hlutfall af næringarviðmiðunargildum
