Fara í efni

Hvernig er hægt að léttast um 8 kíló án þess að fara í megrun?

Að æfa með garnagaul er merki um að þú sért að svindla á sjálfri þér varðandi þær kaloríur sem þú brennir segir í nýrri rannsókn sem var gefin út í the Journal of Science and Medicine in Sport.
Að léttast án þess að fara í megrun
Að léttast án þess að fara í megrun

Að æfa með garnagaul er merki um að þú sért að svindla á sjálfri þér varðandi þær kaloríur sem þú brennir segir í nýrri rannsókn sem var gefin út í the Journal of Science and Medicine in Sport.

Rannsóknin sjálf

Fyrir þessa rannsókn voru fengnar 10 ungar konur sem allar hreyfa sig eitthvað (ekki íþróttafólk) þær voru allar í eðlilegri þyngd og þeim var gefinn máltíð sem var rík af próteini (45% protein), máltíð sem var lág í próteini (15%), og svo enga máltíð fyrir þeirra brennsluæfingu á göngubretti.

Þær konur sem borðuðu máltíð ríka af próteini um klukkutíma fyrir æfinguna brenndu fleiri kaloríum en þær sem að borðuðu ekkert. (enginn munur fannst hjá þeim sem borðuðu máltíðina sem var lág í próteini og þeim sem að borðuðu ekkert).

En hvað þýðir þetta?

“Líkaminn brennir fleiri kaloríum þegar hann hefur fleiri kaloríum til að brenna, eins og þegar þú hefur borðað” segir höfundur rannsóknarinnar, Ashley Binns, Ph.D nemi. Þ.e ef þú hefur borðað sama magn af kaloríum daglega, þá getur þessi auka brennsla grennt þig um allt að 8 kg á ári.

Það að fasta fyrir æfingu hefur verið notað sem grenningar aðferð og er hún alls ekki góð, líkaminn fer að brjóta niður vöðva til að “eiga” fyrir brennslunni, segir Binns. Og þeim mun minna af vöðvum sem þú hefur, þeim mun minna af kaloríum ertu að brenna.

Niðurstaðan

Borðaðu ávallt eitthvað sem að inniheldur mikið af próteini áður en þú ferð á æfingu, til að brenna fleiri kaloríum. Hvert magnið af próteini skal vera hefur ekki ennþá verið rannsakað, segir Binns. Margar rannsóknir stynga upp á 30gr af próteini yfir daginn, sem sagt í þremur máltíðum, bæði ef þú ert að byggja þig upp eða létta þig.

Sá matur sem inniheldur mikið af próteini eru t.d prótein drykkir, eggjahvítur, hnetusmjör eða grísk jógúrt.

Hugmynd að morgunmat fyrir æfingu sem að inniheldur 45% af próteini er : eitt egg, tvær eggjahvítur, tvær ristaðar brauðsneiðar með smjöri og appelsínusafi.

Heimildir: womenshealthmag.com