Fara í efni

Hvernig eru orsakir heilabilunar greindar? 6. pistill

Hvernig eru orsakir heilabilunar greindar? 6. pistill

Góðar upplýsingar eru grundvöllur allra sjúkdómgreininga og það á einnig við
um greiningu á orsökum heilabilunar. Í því tilviki skiptir einnig miklu máli að fá
upplýsingar frá nánasta aðstandanda, um hvaða breytingar hafa orðið síðustu
misseri og hversu miklar þær hafa verið. Einnig skiptir máli að fá góða mynd af
færni til athafna daglegs lífs og að hvaða leyti sú færni hafi breyst.
Lögð eru fyrir verkefni, svokölluð skimpróf. Þau eru einföld en veita þó vísbendingar
um ástandið. Nákvæmt taugasálfræðilegt mat er notað þegar skerðing er ekki mjög
mikil og felst það í fyrirlögn margvíslegra verkefna 1). Matið getur gefið
vísbendingu um tiltekinn sjúkdóm en gefur þó eitt og sér ekki
sjúkdómsgreiningu. Auk þess að sýna í hverju veikleiki er fólginn sýnir það
einnig styrkleika. Við túlkun þarf að taka tillit til aldurs, kyns og menntunar auk
annarra atriða svo sem hugsanlegra geðraskana, lyfjanotkunar og áfengisneyslu
svo fátt eitt sé nefnt.
Ef niðurstaða úr taugasálfræðilegu mati er eðlileg kallast ástandið “Upplifað
minnistap” (sjá 3. pistil) og er þá sjaldan ástæða til frekari rannsókna.
Ef niðurstaðan sýnir væga skerðingu (væg vitræn skerðing) eða ef hún
samrýmist vægri heilabilun er ástæða til að rannsaka til hlítar. Við val á
rannsóknaraðferðum þarf að taka tillit til aldursbreytinga í heila. Einstaklingar
sem komnir eru á níræðisaldur eru því venjulega ekki rannsakaðir með sömu
aðferðum og þeir sem yngri eru.
Ýmsar nýjar greiningaraðferðir hafa verið þróaðar á síðustu 20 árum og heldur
sú þróun væntanlega áfram en þetta eru þær rannsóknir sem koma helst til
greina hér á landi.

  • Blóðrannsóknir eru gerðar hjá öllum óháð aldri.Taugasálfræðilegt mat er venjulega
    gert hjá þeim sem eru með væga vitræna skerðingu eða heilabilun á fyrsta stigi.
  • Segulómun af heila er gerð hjá flestum nema þeim elstu en þá er oftast tekin
    tölvusneiðmynd af heila. Rannsóknina er ekki hægt að gera ef viðkomandi er með
    gangráð eða málmhluti í efri hluta líkamans.
  • Skoðun á mænuvökva er gerð í vaxandi mæli og getur verið afgerandi varðandi
    greiningu á Alzheimer sjúkdómi. Ýmislegt getur þó hindrað mænuvökvatöku svo sem
    fyrri bakaðgerð og blóðþynningarmeðferð.
  • Sykru-Jásjá (jáeindaskann = PET) sýnir efnaskipti í heila og getur stutt greiningu á
    Alzheimer sjúkdómi eða framheilabilun.
  • Heilalínurit getur stutt greiningu heilabilunarsjúkdóms og er nokkuð afgerandi við Lewy
    sjúkdóm.
  • DAT-ísótópaskann af heila er sértækt fyrir Parkinson og Parkinson plús sjúkdóma en Lewy
    sjúkdómur er einn þeirra.
  • SPECT-ísótópaskann af heila getur stutt grunsemdir um framheilabilun og Alzheimer
    sjúkdóm en er sjaldan notað eftir að jásjá kom til sögunnar.

Í þróun eru aðferðir til að mæla sérstök prótein í blóði sem eru í það litlum mæli
að núverandi aðferðir mæla þau ekki. Ef þetta gengur eftir þarf ekki lengur að
taka mænuvökva nema í sérstökum tilvikum 2). Einnig er von á að jásjá verði
notuð með öðrum ísótóp sem er sértækari varðandi Alzheimer, svokallað
amyloid-PET.
Þessi pistill gæti því verið úreltur fyrr en varir.

1. Ryan W Schroeder, Phillip K Martin og Anne Walling. Neuropsychological Evaluations
in Adults. Amercian Family Physician 2019; 15;99(2):101-108.

2. https://www.health.harvard.edu/mind-and-mood/blood-test-mayfind-early-signs-of-alzheimers

Grein eftir Jón Snædal öldrunarlækni
alzheimer.is