Hvað þýðir það að vera Gyðja?
Hvað þýðir það að vera Gyðja?
Sumir morgnar byrja áður en við erum tilbúin. Við opnum augun og finnum strax fyrir þreytunni, sljóleikanum, spennunni í líkamanum eða annarri vanlíðan sem erfitt getur verið að skilja. Dagurinn er varla hafinn, en samt er eins og hluti orkunnar sé þegar farinn frá okkur.
Þá spyrjum við okkur: Af hverju líður mér svona? Á mér að líða svona ?
Oft leitum við að einni orsök og einni lausn. En líkaminn starfar ekki þannig. Orka, streita, svefn, næring, tíðahringur, skjaldkirtill og andleg líðan tengjast allt saman í djúpu samspili náttúrunnar. Þegar eitt fer úr jafnvægi getur það haft áhrif langt út fyrir sjálft sig.
Þess vegna byrjar raunverulegur lífskraftur á jafnvægi.
Jafnvægi þýðir ekki að líkaminn sé alltaf eins. Líkaminn okkar breytist stöðugt. Hormón sveiflast, þarfir þróast og álag lífsins skilur eftir sig spor. Markmiðið er ekki að berjast gegn þessum breytingum, heldur að gefa líkamanum þann stuðning sem hann þarf til að mæta þeim.
Lífið á ekki aðeins að snúast um að komast í gegnum daginn. Við eigum að geta fundið fyrir okkur sjálfum. Vaknað með meiri skýrleika. Haft orku til að skapa, styrk til að framkvæma og léttleika til að dansa, hlæja og lifa.
Úr þeirri hugsun varð Gyðja til.
Gyðja sameinar náttúruna og vísindin í einni heildstæðri blöndu. Adaptógen, plöntuútdrættir, sveppir, íslensk ber, andoxunarefni, vítamín og steinefni sem eru sérvalin þannig að þau bæta hvort annað upp og vinna saman við að styðja líkamann úr mörgum áttum.
Ekki sem ein lausn við einum kvilla, heldur sem dagleg stoð fyrir kerfið í heild.
Gyðja er sköpuð fyrir konuna sem vill finna aftur fyrir eigin krafti. Vera skýr, sterk og lifandi.
Hún vill vekja innri gyðjuna.
Gyðja fæst nú á Heilsudögum í völdum verslunum Nettó. Heilsudagar eru tækifæri til að prófa eitthvað nýtt, hlúa betur að sér og finna hvað styður við eigin líðan.
Hví ekki að gefa Gyðjunni séns?
