Humarsúpa með agúrkum, sólselju og silungahrognum - Nóatún
					Blandið öllu hráefninu saman og setjið hæfilegan skammt í miðjan súpudisk
				
										
													
								Hátíðar humarsúpa frá Nóatúni
							
											Inn á heimasíðu Nóatúns finnur þú margar girnilegar uppskriftir og einnig myndbönd sem aðstoða þig við eldamennskuna heima við.
Hér er girnileg uppskrift af Hátíðar humarsúpunni þeirra og er hún svo sannarlega í sparibúningi.
Hráefni:
Súpa
- 1,5 l gott humarsoð
 - 3 dl hvítvín
 - 4 skalottlaukar saxaðir
 - 3 hvítlauksgeirar saxaðir
 - 1 sellerístilkur saxaður
 - 500 ml rjómi
 - 20 ml koníak
 - 40 g smjör + 30 g hveiti
 - (smjörbolla)
 - salt eftir smekk
 
Humar
- 500 g humarhalar, teknir úr skelinni
 - 20 ml olía
 - 50 g smjör
 - 2 hvítlauksgeirar skornir í tvennt
 - salt
 - 1 agúrka skræld, kjarnhreinsuð
 - og skorin í litla teninga
 - 2 sellerístilkar skornir í litla teninga
 - ½ dós sýrður rjómi 18%
 - ½ búnt fersk sólselja (dill)
 - ½ msk. agavesíróp
 - 1/3 krukka silungahrogn
 - salt
 - safi og börkur af 1 lime
 
Leiðbeiningar:
Súpa
Léttsteikið grænmetið í potti, bætið hvítvíni út í og sjóðið niður um helming. Bætið humarsoði í og sjóðið niður um 1/3. Sigtið yfir í annan pott og bætið rjómanum út í, sjóðið niður um ¼. Smakkið til með salti, þykkið með smjörbollu og blandið vel með töfrasprota. Bætið koníaki út í í restina.
Humar
Hreinsið humar og beygið hann saman í hring. Steikið á pönnu á annarri hliðinni þar til gullinbrúnn. Bætið smjörinu ásamt hvítlauksgeirum út í og leyfið því að freyða. Snúið humrinum yfir á hina hliðina í 10-15 sek. og takið af pönnunni. Þerrið lítillega og raðið í súpudiska.
Blandið öllu hráefninu saman og setjið hæfilegan skammt í miðjan súpudisk. Hellið heitri súpunni yfir og toppið með létt þeyttum rjóma og stökkum brauðteningum.
