Fara í efni

Pizza með stæl og súper holl.

Alltaf hægt að gleðjast yfir góðri pizzu og njóta.
Holl pizza.
Holl pizza.
Hádegið hjá mér.

Búin að vera í smá lægð...æi þið vitið "aumingja ég að búa á þessu landi dæmi......vetur og allt dýrt"
Þessi hundleiðinlega sem tuðar bara um hvað allt er mergjað í útlöndum....og alltaf vetur hér!!
 En nú er komið gott :)
 Er hvort eð er að fara út til Prag og vonast eftir góðu vori þar.
 En allavega um að gera þegar að svona tuðkerling kemur í heimsókn að snúa vörn í sókn.
Gera aðeins betur!
Elda betur, borða betur, líta aðeins betur....svo þá meina ég að setja maskara og svona :)
 Sú sem var svo mikið tuðandi...nennti varla að hafa maskara .
Svo núna spark í rass frú mín góð...veðrið er mergjað.
Og meira að segja garðurinn....já það er hægt að sitja úti í dag :)
Allavega ég fékk eitthvað yfir mig langaði svo í pizzu .
Og ekki séns að ég fari í þann gírinn núna.
Síðast þegar að ég pantaði mér einhverja hollustu böku fékk ég bara ekkert gott svo græja bara gleðina sjálf.
Blómkálsbotn alveg málið í dag.
Ég meina sumar og sól við viljum ekki útblásinn brauðmaga.
Já ....eða hvað viljum við :)
Svo græjaði mér botn og gladdi hug og líkama.
Ég á eiginlega alltaf til blómkálsgrjón inn í ísskáp.
En ef ég ætla nota í brauðbotn verður maður að gjörsamlega taka hvern einasta vatnsdropa úr grjónunum.
Og ég set grjónin í stykki og sný uppá ...þangað til hver einasti dropi er farin.
Og eru þetta 3 dl. blómkálsgrjón.
Set það í skál ásamt einu eggi.
Og 1dl. parmesan...vel rifin.
Þá er það kryddið ég nota í svona botn Ítalska pasta kryddið frá Pottagöldrum, Maldon salt, pipar og cayene pipar.
Öllu blandað vel saman.
Síðan móta ég pizza botn á ofnskúffu með bökunarpappír undir.
Þá græja botninn í ofni stiltur á 180 gráður.
 Baka þangað til gyltur.
Taka ofnskúffuna út.
Og losa botninn frá pappírnum.
Þá er að græja það sem maður langar í á pizzuna :)  
Ég var með þar sem ég er ekki hrifin af pizza sósum stappað avacado.
Síðan sveppir-tómatur-rauðlaukur-paprika og ostur.
Það er æði að setja nokkra dropa af hvítlauks olíu með.
Síðan inn í ofn.
Og í lokin setti ég smá spínat...bara alveg í lokinn inn í ofninum.
Þið finnið bara þegar að pizzan er reddy...osturinn talar fyrir því .
Fer eftir því hvað maður vill mikið bráðin ostinn.
Ég á allavega ekki orð yfir því hvað þetta var gott