Hlaupasería Hlaupahóps FH og Hlaupárs 2026
Hlaupin hefjast kl.19:00 frá göngustígnum gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu í Hafnarfirði en dagsetningar eru eftirfarandi.
- Fimmtudagur 29. janúar.
- Fimmtudagur 26. febrúar.
- Fimmtudagur 26. mars.
Skráning og þátttökugjald
Skráning og greiðsla fer fram á www.netskraning.is. Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum en mælt er með því að keppendur skrái sig á vefnum til að flýta fyrir afhendingu keppnisgagna og til að draga og stressi á keppnisdegi.
- Fullorðnir (15 ára og eldri) greiða 1.900 kr (4.400 kr ef greitt er fyrir öll þrjú hlaupin í einu).
- Börn (0-14 ára) greiða 1.000 kr (2.000 kr ef greitt er fyrir öll þrjú hlaupin í einu).
Tímataka
Allir þátttakendur þurfa að vera með rásnúmer en hvert númer er með áfastri tímatökuflögu. Númerin verða afhent í Hlaupár fyrir hlaup og í íþróttahúsinu á Strandgötu á hlaupdegi milli kl.17:30 - 18:45. Rásnúmerið er margnota og hægt að nota í öllum þremur hlaupunum, gætið þess að beygla ekki eða beygja númerið og flöguna og vinsamlegast festið það framan á líkamann ekki aftan á.
Merktir hraðastjórar munu hlaupa á 20 mín, 25 mín og 30 mín.
Hlaupaleiðin
Hlaupið er frá upphafspunkti (stígur gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu), eftir göngustígnum meðfram strandlengju Hafnarfjarðar til norðurs áfram Herjólfsbraut, beygt til vinstri inn Naustahlein og þaðan aftur inn á Herjólfsbraut og til baka sömu leið.
- Partur af hlaupaleiðinni er á götu og eru þátttakendur beðnir um að taka tillit til þess og sýna varúð. Brautargæsla verður á hlaupaleiðinni og við gatnamót þar sem að lokað verður fyrir umferð.
- Á 1 km, 2 km, 3 km og 4 km verða keilur staðsettar á hlaupaleið.
- Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér hlaupaleiðina vel.
Salerni og fatageymsla
Salernisaðstaða er í íþróttahúsinu á Strandgötu og þar er einnig hægt að geyma fatnað. Athugið að engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðru sem skilið er eftir í íþróttahúsinu né á hlaupleiðinni.
Stigakeppni
- 1.sæti gefur 15 stig
- 2.sæti gefur 14 stig
- 3.sæti gefur 13 stig
- .......
- 13.sæti gefur 3 stig
- 14.sæti gefur 2 stig
- 15.sæti gefur 1 stig
Samanlagður stigafjöldi í heildarúrslitum og aldursflokkum í öllum hlaupunum þremur gildir.
Séu þátttakendur jafnir að stigum eftir þrjú hlaup eru það úrslit í síðasta hlaupi (mars-hlaupi) sem skera úr um sætaröðun í stigakeppninni.
Í stigakeppninni gildir eftirfarandi aldursflokkar fyrir karla og kvennaflokk;
- 14 ára og yngri
- 15-29 ára
- 30-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
Verðlaun og lokahóf
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í karla og kvennaflokki óháð aldursflokki eftir hvert hlaup og fer verðlaunaafhending fram í íþróttahúsinu á Strandgötu strax að loknu hlaupi. Verðlaunaafhending fyrir hlaupaseríuna fer svo fram á lokahófi sem haldið verður í Sjónarhól Kaplakrika (dags. auglýst síðar). Þar verða heildarsigurvegarar fyrir hlauparöðina í karla- og kvennaflokki verðlaunaðir fyrir samanlagðan árangur í öllum þremur hlaupunum auk þess að verðlaunað verður fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum aldursflokki karla og kvenna.
Einnig verða dregin út glæsileg útdráttarverðlaun þar sem möguleikarnir fara eftir fjölda hlaupa þátttakanda
Skráning: https://netskraning.is/hlaupaseria-fh/
Hægt er að fylgjast með hlaupinu á Facebook síðu hlaupsins.
Þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu í Suðurbæjarlaug (Hringbraut 77)
