Fara í efni

Hafnarfjall Ultra - nýtt utanvegahlaup í Borgfirsku ölpunum

Laugardaginn 28. júní verður utanvegahlaupið Hafnarfjall Ultra haldið í fyrsta sinn. Fjórar mismunandi vegalengdir eru í boði, svo öll ættu að geta fundið hlaup við sitt hæfi. Hlaupaverslunin Fætur toga verður aðalstyrktaraðili hlaupsins. Það verða því vegleg verðlaun og útdráttarverðlaun frá Fætur toga auk verðlauna frá fyrirtækjum í nágrenninu.
Kristinn Óskar Sigmundsson aðal forsprakki hlaupsins með útsýni yfir Borgarnes
Kristinn Óskar Sigmundsson aðal forsprakki hlaupsins með útsýni yfir Borgarnes

Helgina 28. júní verður utanvegahlaupið Hafnarfjall Ultra haldið í fyrsta sinn. Hlaupið byrjar og endar í Borgarnesi, nema fjölskylduhlaupið sem byrjar í fjallsrótum Hafnarfjalls.

Fjórar mismunandi vegalengdir eru í boði, svo öll ættu að geta fundið hlaup við sitt hæfi.

  1. Hafnarfjall Tindur 14,8 km, 810 m hækkun
  2. Hafnarfjall 7 tindar 23,2 km, 1.230 m hækkun
  3. Hafnarfjall 7 tindar og dalir 35,5 km, 2.250 m hækkun
  4. Hafnarfjall fjölskylduhlaup 2,4 km, 155 m hækkun

Skráning fer fram á www.netskraning.is

Hlaupaverslunin Fætur toga verður aðalstyrktaraðili hlaupsins. Það verða því vegleg verðlaun og útdráttarverðlaun frá Fætur toga auk verðlauna frá fyrirtækjum í nágrenninu.

Afhending gagna

  • Í þróttamiðstöðinni í Borgarnesi fimmtudaginn 26. júní kl. 18:00-20:00
  • Í versluninni Fætur toga, Höfðabakka 3, Reykjavík föstudaginn 27. júní kl. 13:00-18:00
    Keppendur fá 20% afslátt af fötum og skóm í búðinni þann dag!!!!!
  • Í Menntaskóla Borgarfjarðar (MB) á laugardagsmorgninum kl. 8:00-9:30

Þar verða allra nauðsynlegustu vörur frá Fætur toga til sölu, t.d. glös, drykkjarflöskur, gel, belti og sólgleraugu (meðan birgðir endast). Mælt er með að sem flestir sæki keppnisnúmer á fimmtudag eða föstudag til að létta á laugardagsmorgninum.

Sagan á bak við þetta nýja hlaup

Kristinn Óskar Sigmundsson er mikill hlaupari sem stundar það að hlaupa ýmsar leiðir á Hafnarfjalli. Hann fékk þá brjáluðu hugmynd síðasta haust að halda hlaup í fjallinu í einni af ferðum sínum á fjallið. Þegar hann kom heim skrifaði hann leiðarlýsingu og sendi á hlaupafélaga sína þá Stefán Gíslason, Bjarna Traustason, Gunnar Viðar Gunnarsson og Jósep Magnússon sem tóku vel í hugmyndina. Þá var strax hafist handa við að útvega leyfi til að fá að halda hlaup og hlaupa yfir Borgarfjarðarbrúna. Önnur skipulagning hófst þegar það var komið í höfn.

 

Þeir félagar halda hlaupið undir merkjum hlaupahópsins Flandra sem hefur staðið að hinum frægu Flandrasprettum um árabil. Flandrasprettir eru 5 km götuhlaup sem haldin eru einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina, október til mars. Þeir eru með líku sniði og Poweradehlaupin frægu í Elliðaárdalnum.

Aðspurðir segja Kristinn Óskar og Stefán að fyrirtæki og stofnanir í nágrenninu séu mjög jákvæð gagnvart Hafnarfjall Ultra og vilji allt fyrir hlaupahaldara gera, sem sé gríðarlega verðmætt.

Fyrir þá hlaupara sem eru að velta fyrir sér hversu erfitt hlaupið er segir Kristinn Óskar að hann hafi sjálfur hlaupið þó nokkur hlaup hér heima og telji að lengstu vegalengdina í Hafnarfjall Ultra sé hægt að setja í sama erfiðleikaflokk og Esjumaraþonið sem flestir hlauparar eru sammála um að sé ansi krefjandi hlaup.

Hlaupahaldarar sjálfir væru til í að keppa í öllum vegalengdum í sínu eigin hlaupi, segja þær allar vera gríðarlega krefjandi og skemmtilegar og útsýnið magnað. Enda kalla þeir svæðið Borgfirsku Alpana.

Aðspurður hvort einhvers staðar í hlaupinu þurfi að fara sérstaklega varlega segir Kristinn Óskar. “Það er einn staður sem við köllum Hillary þar sem er aðeins laust í brekkunum, og þar þarf að príla á milli í klettaskor rétt áður en komið er á toppinn á Hafnarfjalli. Við erum búnir að setja bandspotta þarna, og svo verða brautarverðir til aðstoðar ef með þarf á þessu svæði. Þetta er þó ekkert til að óttast, langt í frá. Það er líka aðeins grýtt þegar farið er ofan af Gildalshnjúk og yfir á Miðhnjúk og áleiðis á Katlaþúfu en eftir það er brautin ekki varasöm.”

Kristinn Óskar segir að alls staðar í hlaupinu sé ástæða til þess að gefa sér smá tíma til að líta upp og njóta útsýnisins, sérstaklega af tindunum. “Af Tungukolli sjást t.d. 5 jöklar í góðu skyggni, Snæfellsjökull, Eiriksjökull, Geitlandsjökull, Langjökull og Þórisjökull.

Hlaupahaldarar hvetja alla hlaupara til að vera vel búnir í hlaupinu, með næga næringu og passa upp á að vera með skyldubúnað: Hann má alla fá í Fætur toga, sem einnig er með góða og stöðuga utanvegaskó til að tækla þessa áskorun og hin frægu Maurten gel. Hlaupastafir gætu nýst vel enda mikil hækkun í hlaupinu.

Skilaboð til hlaupara frá hlaupahöldurum eru:

“Komið og njótið og upplifið frábæra hlaupaleið í fallegum fjallasal.”

Nánari upplýsingar veita:

Kristinn Óskar Sigmundsson, kiddo1@simnet.is, 852 2203

Stefán Gíslason, stefan@environice.is, 862 0538