Fara í efni

Göngugreiningar – finndu muninn í hverju skrefi

Göngugreiningar hafa rutt sér til rúms undanfarin ár enda hefur búnaðurinn sem notaður er við greiningarnar, sem og kunnátta greiningaraðila vaxið að gæðum.
Mynd úr hluta tækjabúnaðar sem notaður er við greiningar
Mynd úr hluta tækjabúnaðar sem notaður er við greiningar

Verslunin Fætur Toga Höfðabakka 3 í Reykjavík býður upp á göngugreiningar fyrir alla jafnt börn sem fullorðna. Þá sem ganga sér til heilsubótar, hlaupara á öllum stigum sem og fyrir íþróttafólk í öllum greinum íþrótta. Það er ekki nauðsynlegt að finna fyrir verkjum til að eiga erindi í slíka greiningu. Ef þú telur að vinnu-, æfinga- eða hlaupaálag sé þess eðlis að stoðkerfið sé undir sérstöku álagi, þá er ekki úr vegi að láta skoða hvort að hægt sé að tryggja góða líkamlega heilsu til framtíðar og verkjaleysi með réttum skóm og jafnvel innleggjum sem eru sérsniðnir að fæti og niðurstigi viðkomandi.

Hvað er skoðað í göngu- og hlaupagreiningum

Í göngugreiningum er skoðað hvernig álag dreifist á fótinn í skrefinu, hvort skekkjur séu í hælum, ökklum eða hnjám. Mælt er hvort mislengd sé á ganglimum bæði frá mjöðmum og hnjám. Einnig er athugað hvernig viðkomandi beitir sér við göngu. Í greiningunni færðu upplýsingar um hvort einhverjar skekkjur séu í fótum, sem geta valdið stoðkerfisvandamálum eða eru líklegur valdur að verkjum, eymslum eða meiðslum.

Búnaður við göngugreiningar

Fætur Toga nota framúrskarandi búnað frá Materialise, hátæknilega þrýstiplötu sem sýnir helstu álagspunkta við framstig og niðurstig, göngu/hlaupabretti til að skoða göngulag, Trochanter mælistiku til að mæla möguleika á skekkjum í grind og sérhannaðan tölvuhugbúnað til að greina allar mælingarnar og draga fram niðurstöðu. Hver tími er um 20 mínútur.

Endurkoma

Allir sem koma í göngu- og hlaupagreiningu eiga kost á að koma í fría endurkomu innan 4 mánaða ef þörf er á. Í endurkomunni er skoðað hvort breytingar hafi átt sér stað. Ef notast var við innlegg eru þau skoðuð og þeim breytt sé þess þörf þar sem innlegg og notandinn þurfa að aðlagst. Stundum þarf jafnvel að koma í endurkomu fyrr t.d. ef að innleggin valda blöðrum, þá má slípa af þeim til að þau passi betur.

Þeir sem mælast með mislengd ganglima og fá hækkun í skó eða undir innlegg, ættu að koma eftir u.þ.b. 3 mánuði og önnur mæling er tekin til að staðfesta fyrri mælingu, hvort hækkunin sé að skila árangri eða hvort breytinga sé þörf.

Hver tími í endurkomu er um 10-20 mínútur.

 

Aldur í greiningu

Það er enginn of gamall til að koma í göngugreiningu. Fætur Toga tekur á móti fólki á öllum aldri. Það má þó hafa í huga að fætur ungra barna eru að þroskast og breytast og eru yfirleitt mjög mjúkir. Við mælum því venjulega ekki með að mjög ung börn komi í göngugreiningu fyrr en þau eru orðin tveggja ára gömul.

Vaxtarverkir hjá börnum

Börn og ungmenni sem eru að vaxa finna oft fyrir óþægindum og verkjum í líkamanum oft kallað vaxtarverkir en nánar skilgreint í læknisfræðinni sem Osgood-schlatter og sever’s sjúkdómur. Sér í lagi eru þessir verkir í hælum og hnjám, mest þó við áreynslu en getur einnig verið í daglegu lífi og skólaíþróttum.

Nánar um Osgood-schlatter sem lýsir sér sem verkur neðan við hné hjá börnum og unglingum á vaxtarskeiði – oft hjá 10 til 15 ára börnum, sér í lagi þeim sem stunda íþróttir. Þessi einkenni koma til vegna áreitis / bólgu þar sem hnésinin festist við sköflunginn. Þetta leiðir til eymsla og mögulega verks fyrir neðan hnéskelina og jafnvel kemur smá bunga á svæðið, einkenni versna við álag.

Nánar um Sever’s sjúkdóminn sem einkennist af hælsársauka hjá börnum og unglingum. Algengara hjá börnun í íþróttum og kemur oftast fram á vaxtarskeiði milli 8 til 14 ára aldurs. Orsökin er áreiti/bólu í vaxtarbrjóski hælbeinsins og tengist endurteknum höggum og togi frá Achilles-sin (hásin).

Oft leiðir þetta til mikillar og skjótrar þreytu í fótum og börnin kvarta jafnvel undan fótaverkjum þrátt fyrir að álag sé ekki mikið. Inngrip með innleggjum og/eða öðrum aukahlutum getur verið lykilatriði í fljótum og góðum bata.

Börn sem ganga mikið á tánum geta líka upplifað þreytu og verki, en allt þetta getur valdið óeirð í fótum, jafnvel um nætur svo þau eru mikið á ferðinni í rúminu og sparka mikið. Oft getur þetta ástand verið vísbending um skekkju í fótum og óstöðugleika. Innlegg geta verið hjálpleg í þessum aðstæðum.

Í þessum tilfellum er mikilvægt að skoða með greiningu hvort að hægt sé að bæta ástandið, nota innlegg í skó, velja rétta skó og jafnvel að fá góð ráð um æfingar. Í greiningunni er staða fóta skoðuð, hvort fætur eru flatir, hvernig staðan á hnjám og ökklum er og annað sem gæti verið orsök.

 

Almennari þættir

Ef einn eða fleiri þættir af listanum hér að neðan á eða eiga við þig þá er góð hugmynd að fara í göngugreiningu og sjá hvort hægt sé að aðstoða þig við að finna leiðir til að líða vel og minnka óæskilegt álag.

Þættir sem mögulega má laga í kjölfar göngugreiningar

  • Verkir í baki, mjöðmum, hnjám, ökklum, hælum eða tábergi.
  • Mislengd ganglima eða grunur um slíkt.
  • Sýnilegar skekkjur í hælum, ökklum og/eða hnjám.
  • Flatur fótur eða hár iljarbogi.
  • Tábergssig, þreyta, doði eða stingandi tilfinning í tám.
  • Bólgur og eymsli undir iljum og/eða hælum.
  • Þörf á ráðgjöf um hlaupaskó.
  • Mikið álag í íþróttum eða endurtekin meiðsli.
  • Mikil staða og ganga á hörðu undirlagi.
  • Aflaganir á fæti eða óeðlilegur vöxtur beina.
  • Beinhimnubólg, hæleymsli (hælspori) eða iljarfellsbólu (plantar fasciitis)

 

Innlegg

Í kjölfar göngugreiningar er hægt að útbúið sérgerð innlegg ef talin er þörf á því. Bæklunarskósmiður sér um að búa til innleggin og notar sérstakan grunn frá Schein Ortopadie í Þýskalandi sem síðan er sniðinn að sérþörfum hvers og eins. Lárus Gunnsteinsson, skómeistari og bæklunarskósmiður, sér síðan um að smíða innleggin samkvæmt niðurstöðum greiningarinnar.

Fætur Toga nýtir nýjustu tækni í göngugreiningum og því er hægt að panta sérstaklega 3D prentuð innlegg sem þá eru sniðin að fótum viðskiptavinarins til dæmis með styrkingum eða öðru til að hjálpa til við að leiðrétta það sem fram kom að bæta þyrfti í göngugreiningunni.

Með þessari nýjustu tækni getum við hjá Fætur Toga aðlagað okkur að allskonar verkefnum. Fleiri möguleikar verða við innleggja smíði fyrir ákveðnar skótýpur og verða auðveldari dæmi eru innlegg í takkaskó, púðar og stuðningur inn í háa hæla svo eitthvað sé nefnt.

Skóbúnaður og ráðleggingar

Í göngugreiningu hjá Fætur Toga færð þú einnig ráðleggingar um hvað skal hafa í huga við val á skóm. Þar er mælt með stuðningsvörum ef þarf og með æfingum eða teygjum ef það á við. Einnig er bent á hvort aðrir meðferðaraðilar gætu hjálpað svo sem sjúkraþjálfari, nuddari, kírópraktor eða læknir.

 

Hjálpartæki sem eru í boði til að bæta fótaheilsu

Ýmsar nuddvörur eins og t.d. nuddboltar, nuddrúllur og nuddbyssur. Aðrar fótavörur eins og hælpúðar (dempun undir hæla, í tilfellum hælsporaeinkenna o.fl.), táglennur (bæði fyrir hallux sem og allar tær í einu) og hallux valgus spelkur. Þrýstisokkar sem hjálpa til í tilfellum, bjúgmyndunar, þegar kálfar eru stífir og við almenna endurheimt.

15% afsláttur af skóm

Viðskiptavinir sem koma í göngugreiningu hjá Fætur Toga15% afslátt af skóm eftir greiningu. Við aðstoðum þig að velja réttu skóna út frá niðurstöðu göngugreiningar.

Til að komast að þarf að panta tíma sem bæði er hægt að gera á heimasíðunni https://faeturtoga.is/boka-greiningu/ . Einnig má hringja í búðina í síma 557-7100 til að fá nánari upplýsingar og leiðbeiningar.