Fara í efni

Glútenfrí Pizza

Dásamlega góð glutenlaus pizza.
Pizzur alltaf jafn góðar
Pizzur alltaf jafn góðar

Hérna færðu frábæra uppskrift af glutenlausri pizzu. 

Hráefni: 

1 ½ tsk salt

1 ½ tsk sykur

25 gr þurrger

½ dl olía

3 ½ dl volgt vatn (37°)

7 dl Finax fínt mjölmix (rauð ferna)

Aðferð:

Blanda saman olíu, sykur, salt og ger (píska saman)

Vatni og mjöli er bætt útí og  hrært saman með handþeytara í 4-5 mín

Látið hefast c.a 20 mín

Smyrjið deiginu á smjörpappír

Bakið á 200° í 5-7 mín

Takið úr ofninum og setjið ykkar uppáhalds álegg á pizzuna

Setjið aftur inn í ofn á 250° bakið þar til að pizzan er orðin gullinbrún.

Njótið~