Fara í efni

GERIR ÞÚ ÞESSI MISTÖK EFTIR ÆFINGAR?

GERIR ÞÚ ÞESSI MISTÖK EFTIR ÆFINGAR?

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þú kláraðir erfiða æfingu - Vel gert! 
En að æfa er ekki það eina sem skiptir máli, það sem þú gerir eftir æfingu er lykillinn  
að stækkun vöðva, æfingin er nefninlega ekki búin. 

  

1. GLEYMA AÐ DREKKA VATN 

Flesta vantar vatn í kroppinn eftir æfingu. Það er nauðsynlegt að ganga úr skugga um að þú 
drekkir alltaf nóg af vatni. Hversu mikið vatn á að drekka? Um það bil 30-35 ml á hvert 
kg líkamsþyngdar þinnar á dag auk 500-1000 ml aukalega fyrir hverja klukkutíma æfingu. 
Þetta er sérstaklega mikilvægt ef þú svitnar mikið! 
Drekktu vatn fyrir, á meðan og sérstaklega eftir æfinguna þína.  

 

2. ÞÚ BORÐAR EKKI EFTIR ÆFINGU 

Ert þú ein af þeim sem getur ekki borðað eftir að hafa æft? Eða ertu að reyna að draga 
úr kaloríum til að léttast? það að borða ekki eftir æfingu eru mikil mistök. Orkubirgðir hafa tæmst á æfingunni, líkaminn þarf nú eldsneyti til að byggja upp vöðva og jafna sig. Reyndu að fá þér að borða eftir um það bil 30 mínútum frá æfingu. Besti kosturinn er sambland af próteinum 
og kolvetnum. Hvað með vegan hristing eftir æfingu (án próteindufts) eða grípa boost. 

  

3. GLEYMDIR ÞÚ AÐ TEYGJA? 

Upphitun og teygjur eru hluti af líkamsþjálfun. Vöðvarnir munu bregðast miklu betur við 
þegar þú meðhöndlar þá vel og gefur þér tíma til að teygja þá vel eftir æfingu. 

  

4. GANGA FRÁ EFTIR SIG EFTIR ÆFINGU 

Gakktu frá eftir þig (hvort sem þú ert heima eða í ræktinni). Vertu viss um að hafa 
snyrtilegt í kringum þig. En þetta er sérstaklega mikilvægt ef þú ert að æfa með
lóð, bjöllur eða teygjur, heima eða í ræktinni. Sótthreinsaðu alltaf búnaðinn og vertu 
viss um að þú setjir lóðin aftur þar sem þú tókst þau, það er fátt leiðinlegra en lóð út um
allan æfingasal. Vertu tillitsöm/samur! 

   

5. HREYFING UTAN ÆFINGA 

Gerðu hreyfingu að lífsstíl, jafnvel þó að þú hafir klárað æfingu dagsins. 
Taktu stigann, stattu upp frá skrifborðinu á klukkustundar fresti til að fá þér 
vatnsglas, taktu pásu til að tala við vinnufélaga í stað þess að senda þeim tölvupóst. 
Þessi auka hreyfing er mjög mikilvæg. 

Heimild : runtastic.com