Fara í efni

Gættu þín nú - Guðni og hugleiðing á laugardegi

Gættu þín nú - Guðni og hugleiðing á laugardegi

En gættu þín nú!

Samfélagið er ekki sammála mér. Stór hluti samfélagsins og menningarinnar er gegnsósa af sjálfsvorkunn, ásökunum og þeirri hugmynd að allt sé öðrum að kenna.

Við höfum flest verið alin upp í þeirri trú að við berum ekki ábyrgð á upplifunum okkar og lífi. Og mörg okkar ölum við eigin börn upp á sama hátt, með ósjálfráðu uppeldi, slysahegðun sem byggir á vana og uppeldisgildum sem koma ein- hvers staðar frá og við höfum tekið upp gagn- rýnislaust – af vana.

Við bendum í burtu frá okkur – á umheiminn, samfélagið, stórfjölskylduna, efnahagsástandið, veðrið, verðlagið, vinnuna, starfsfélagana, yfirmanninn, óheppnina.

Okkur er gríðarlega tamt að tala á sömu forsendum um vissar samfélagsaðstæður – börnum er kennt að það sé leiðinlegt í skólanum, að hann sé áþján sem þurfi að komast í gegnum, og sjálf komum við þjökuð undan venjulegum vinnudegi og kúldrumst upp í sófa, úrvinda og pirruð.