Fara í efni

Framfaraviðurkenningar vegna 2025

Framfarir – Hollvinafélag Millivegalengda og Langhlaupara, veitti á dögunum sína árlegu viðurkenningar vegna árangurs og afreka ársins 2025.
Á myndinni eru frá vinstri, Andrea Kolbeinsdóttir, Baldvin Þór Magnússon, Bryndís María Jónsdóttir, …
Á myndinni eru frá vinstri, Andrea Kolbeinsdóttir, Baldvin Þór Magnússon, Bryndís María Jónsdóttir, Sindri Karl Sigurjónsson og Davíð Freyr Magnússon. Myndina tók Hafsteinn Óskarsson. 

Framfarir – Hollvinafélag Millivegalengda og Langhlaupara, veitti á dögunum sína árlegu viðurkenningar vegna árangurs og afreka ársins 2025.

Árlega veita Framfarir þrennskonar viðurkenningar; vegna hlaupara ársins, vegna framfara yngri hlaupara 16-19 ára og vegna Íslandsmeta í götu og brautarhlaupum.

Aníta Hinriksdóttir FH var valin hlaupari ársins í kvennaflokki fyrir 2:03,04 mín í 800m hlaupi utanhúss en fyrir það hlaut hún 1108 World Athletisc (WA) stig og 2:03,71 mín innanhúss og 1125 WA stig.

Í karlaflokki var það Baldvin Þór Magnússon UFA fyrir 7:39,94 mín í 3000m hlaupi innanhúss, en fyrir þann tíma hlaut hann 1202 WA stig, 3:39,67 mín og 1161 WA stig í 1500m hlaupi innanhúss og 28:37 mín, og 1076 stig í 10km á götu.

Hlauparar ársins eru valdir á forsendum stigaárangurs í millivegalengdum og langhlaupum. Þau hlutu peningaverðlaun og viðurkenningarskjal.

Baldvin Þór fékk einnig peningaverðlaun fyrir Íslandsmet í 10km á götu, 1500m innanhúss og 3000m innanhúss.

Andrea Kolbeinsdóttir ÍR hlaut sömuleiðis peningaverðlaun fyrir Íslandsmet sín í 5 km á götu 16:18 mín (sem hún sló svo aftur í Víðavangshlaupi ÍR í apríl sl.) og í 3000m hindrunarhlaupi 10:07,38 mín.

Aðrir sem hlutu viðurkenningar voru Bryndís María Jónsdóttir ÍR fyrir framfarir í 800m, Sindri Karl Sigurjónsson ÍR fyrir framfarir í millivegalengdum og langhlaupum og Davíð Freyr Magnússon ÍR fyrir framfarir í millivegalengdum og langhlaupum.

Þessar þrjár viðurkenningar kallast framfaraviðurkenningar og byggja á framförum milli ára út frá WA stigalegum bætingum í greinum frá 800m og upp úr. Miðað er við fæðingarár og aldursbilið 15-19 ára, en einnig er horft til þess, hverskonar árangur samanburðurinn snýst um þannig að faglegt og huglægt mat kemur einnig við sögu. Vanalega er ekki valinn nema einn af hvoru kyni en undantekning var gerð nú þar sem ómögulegt þótti að gera upp á milli Sindra og Davíðs. Þau þrjú hlutu öll peningaverðlaun frá Framförum auk viðurkenningarskjals.

Framfarir eiga sér 24 ára sögu en árið 2002 komu saman nokkrir eldhugar og settu félagið á laggirnar. Flest eru þau enn í framlínunni í hlaupageiranum eða koma að skipulögðu starfi innan íþróttahreyfingarinnar. Tala virkra félaga fór hæst í 70 manns en hefur dalað mjög síðan þá en þó má segja að fjölmargir komi að virkni félagsins þar sem góður hópur hlaupara á ýmsum aldri tekur þátt í Víðavangshlaupaseríu Framfara sem fram fer á hverju hausti þar sem Burkni Helgason er aðal driffjöðurinn og framkvæmdar aðilinn.
Sumt af því sem Framfarir hafa áorkað má lesa um hér https://www.heilsutorg.is/is/hreyfing-lifsstill/framfarir
Stjórn Framfara skipa: Fríða Rún Þórðardóttir, formaður, meðstjórnendur eru Gunnar Páll Jóakimsson og Sigurður Pétur Sigmarsson, gjaldkeri er Jón Örlygsson.

Framfarir stefna á skráningu á Almannaheillaskrá sem gerir þeim sem brenna fyrir áframhaldandi framfarir og afrek í millivegalengdum og langhlaupum kostur á að styrkja Framfarir og fá um leið skattaafslátt. Hægt er að lesa sér til um þetta inni á https://www.styrkja.is/skattur og nýta sér reiknivélina sem þar er. Hægt verður að hafa samband varðandi framlag til Framfara á netfangið framfarirhollvinir@gmail.com