Toppkál, áhugaverð "nýjung" á íslenskum grænmetismarkaði
Toppkál er upprunnið í Evrópu og sérstaklega mikið ræktað í Danmörku, Frakklandi og Þýskalandi.
Toppkál er afbrigði af höfuðkáli en algengasta tegundin er með hvítt höfuð, þó er einnig til gerð með rauð höfuð. Toppkál vex hraðar og er bragðmildara en aðrar gerðir höfðukáls en jafnframt er geymsluþol þess mun minna. Ystu blöðin eru græn en verða ljósari innar í höfðinu. Sérstök lögun þess stafar af því að blöðin beygja sig ekki eins yfir vaxtarbroddinn eins og hjá öðru höfuðkáli.
Toppkál er mildara á bragðið, léttara og auðmeltanlegra en hefðbundið hvítkál.
Geymsla
Besti geymsluhiti toppkáls er 0-5°C. Toppkál getur þó geymst nokkuð lengi ef vel er passað upp á rétt hitastig og að kálið þorni ekki upp. Því þarf að pakka því vel inn.
Notkun
Toppkál er notað hrátt og smátt saxað í ýmiss konar salöt. Það hentar vel í súpur og grænmetisstöppu en einnig má borða það soðið eða smjörsteikt, eða nota það í fyllingar eða sjóða niður. Ef það er soðið, notið þá líka ystu blöðin þar sem þau eru næringarríkust. Sé kálið orðið slappt má gera það stíft á ný með því að leggja það í ísvatn í um 30 mín.
Mjög gott er að skera toppkál í fjórðunga, pensla með olíu og krydda eftir smekk. Baka í ofni þar til gyllt og karamelíserað. Líka er gott að grilla það og hafa sem meðlæti með fiski og kjöti.
Toppkál má nota sem staðgengil fyrir hvítkál í flestum uppskriftum.
Má frysta toppkál?
Ekki er venja að frysta toppkál, en þó má frysta það með góðum árangri. Kálið er þá hreinsað og stöngullinn fjarlægður, síðan er kálið skorið í granna strimla og sett í sjóðandi vatn í 3 mínútur. Pakkið því í frystiumbúðir og setjið beint í frysti þegar það hefur kólnað. Athugið að kál missir eittthvað af næringargildi sínu við suðu og bragðgæðin minnka. Súrsað kál heldur betur bragðgæðum og næringargildi við frystingu.
Hvaða hluta er hægt að borða?
Allir hlutar höfuðsins erru ætir nema neðsti hluti stöngulsins. Eigi að borða stöngulinn þarf að sjóða hann í u.þ.b. 20 mínútur. Eins og áður er nefnt er næringin aðalega fólgin í stönglinum og ystu blöðunum.
|
Innihald í 100 g |
Vatn 92 g |
|
Næringargildi í 100 g |
|
|
Orka |
117 kj |
|
28 kcal |
|
|
Fita |
0,2 g |
|
Þar af mettuð |
0,04 g |
|
Kolvetni |
4,1 g |
|
Þar af sykurtegundir |
4,1 g |
|
Trefjar |
2,3 g |
|
Prótein |
1,3 g |
|
Salt |
0,01 g |
|
NV* |
||
|
Fólínsýra |
55 µg |
28% |
|
C vítamín |
54 µg |
68% |
* Hlutfall af næringarviðmiðunargildum
Toppkál er hitaeiningasnautt en mikilvæg uppspretta vítamína. Í stilkum og taugum blaðanna er mikið af trefjum. Eins og hjá öðrum káltegundum eru ystu blöðin næringarríkust og því grænni sem þau eru þeim mun meira innihalda þau af vítamínum og járni. Eitthvað dregur þó úr vítamíninnihaldi við suðu. Toppkál er ómissandi hluti í hollustu og fjölbreyttu fæði.
