Fara í efni

Orkuskot sem kemur þér sko af stað!

Það er svo gott að fá sér eitthvað orkuríkt og gott til að koma sér af stað á morgnanna, þetta ávaxta og orkuskot kemur okkur svo sannarlega af stað, vittu til! Það er svo gott að fá sér eitthvað einfalt og fljótlegt á morgnana og ég tala nú ekki um ef að það er einnig orkuríkt og hollt.
Gott orkubúst í morgunsárið
Gott orkubúst í morgunsárið

Það er svo gott að fá sér eitthvað orkuríkt og gott til að koma sér af stað á morgnanna, þetta ávaxta og orkuskot kemur okkur svo sannarlega af stað, vittu til.

Einfalt og fljótlegt á morgnana og ég tala nú ekki um ef það er einnig orkuríkt og hollt. 

Þessi drykkur virkar einstaklega vel, kemur okkur af stað og gerir okkur tilbúin fyrir daginn en einnig  gefur þetta okkur orku og næringu. 

Ég set þetta í safapressuna (djúsarann) og uppskriftin dugir í eitt venjulegt glas!

 Uppskrift:

6 gulrætur
1 frekar stór epli
engifer eftir smekk (engferði er bragðmikið þannig ég nota ekkert rosalega mikið)
klaka

Aðferð:

Ég tek utan af gulrótunum, eplinu og engiferinu set það í djúsvélina.
Þegar að allt er komið í glasið er gott að setja smá klaka, en eftir svona orkuskot erum við svo tilbúin að takast á við daginn. 

 

Birt í samstarfi við

 

Tengt efni: