Kotasælupönnsur
Þessar pönnsur eru fínar til dæmis í morgunmat eða með miðdegiskaffinu. Þær eru bragðgóðar, hollar og próteinríkar.
Þessar pönnsur eru fínar til dæmis í morgunmat eða með miðdegiskaffinu. Alveg upplagt að borða þær með sultu. Hægt er að bæta við sykri eða öðru sætuefni í uppskriftina ef ykkur finnst þær ekki nógu bragðmiklar. Mér finnst það persónulega ekki þurfa. Uppskriftin er miðuð við tvo til þrjá skammta (sirka 8-9 litlar pönnsur). Pönnsurnar eru próteinríkar og innihalda talsvert af E-, B2- og B12-vítamíni.
| Magn | Hráefni |
| 200 g | Kotasæla |
| 2 dl | Haframjöl |
| 3 stk | Egg |
| 1 tsk | Vanilludropar |
| eftir smekk | Kanill |
| - Setja allt hráefnið í blandara | |
| - Hita pönnu í ~5 mín með PAM spreyi eða olíu | |
| - Setja sirka 2 msk í einu á pönnuna | |
| - Snúa við hverri pönnsu þegar smá kúlur myndast |
|
Hrund Valgeirsdóttir, næringarfræðingur MSc, Næring.com

