Fara í efni

Leynist myglað meik eða bólumyndandi bakteríur í þínum bursta?

Leynist myglað meik eða bólumyndandi bakteríur í þínum bursta? Augnskuggaburstana er nóg að hreinsa á ca 30 daga fresti nema þér sé hætt við augnsýkingu en það gildir ekki með förðunarburstann eða púðurburstann. Meik er fljótt að mygla í burstanum og eins sest húðfita á hárin svo vikulegur þvottur á förðunarburstum er algjört möst. Sumar þrífa förðunarburstana sína eftir hverja notkun en þú þarft ekki að ganga svo langt nema þú sért slæm af bólum eða með sýkingu í húð.
Leynist myglað meik eða bólumyndandi bakteríur í þínum bursta?

Leynist myglað meik eða bólumyndandi bakteríur í þínum bursta?

Augnskuggaburstana er nóg að hreinsa á ca 30 daga fresti nema þér sé hætt við augnsýkingu en það gildir ekki með förðunarburstann eða púðurburstann. Meik er fljótt að mygla í burstanum og eins sest húðfita á hárin svo vikulegur þvottur á förðunarburstum er algjört möst.

Sumar þrífa förðunarburstana sína eftir hverja notkun en þú þarft ekki að ganga svo langt nema þú sért slæm af bólum eða með sýkingu í húð.

Svona þrífur þú förðunarburstana þína

Notaðu milda sápu eins og barnasjampó til að þrífa burstana og passaðu að nota ekki of heitt vatn því þá geta hárin losnað upp.

  • Skolaðu burstana upp úr volgu vatni.
  • Berðu sápu á þá og nuddaðu vel undir rennandi vatni.
  • Skolaðu alla sápuna úr, vel og vandlega.
  • Leggðu burstana á handklæði og láttu þá þorna vel yfir nótt.

Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan frá Chiutips þar sem hún sýnir hvernig á að þrífa bursta, make-up pallettur og varaliti.

Sjáðu meira frá 

 

Tengt efni: