17. JÚNÍ HLAUP HHHC og KRAFTS
Frábært framtak HHC og Krafts á 17. júní en hlauparar eru hvattir til að styrkja Kraft, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Frábær leið til að byrja þjóðhátíðardaginn
HHHC og Kraftur, standa fyrir rólegu samhlaupi til styrktar Krafti en lagt verður af stað frá World Class Kringlunni kl. 9 þann 17. júní nk en mæting er kl. 08:30.
Hlaupið er rólega - eða allir á sínum hraða, um 10 km leið frá Kringlunni, niður að Nauthólsvík, út með Ægissíðu og til baka. Drykkjarstöð verður á leiðinni.
Gaman væri ef sem flestir myndu mæta í íslenskum landsliðstreyjum eða bolum.
Markmiðið er að njóta samverunnar, hreyfa sig og eiga góðan morgun saman. Engin tímataka, engin keppni – bara jákvæð orka og góður félagsskapur.
Nuun & Heilsa bjóða upp á drykki fyrir þátttakendur að hlaupi loknu.
Taktu með þér vini, fjölskyldu og góða skapið og hjálpumst að við að safna fyrir mikilvægt starf Krafts.
