Hreyfi áskorunin – We Challenge the Year 2026
Hugmyndin að Hreyfi áskorun ársins 2026 á Íslandi er að danskri fyrirmynd en markmiðið er að hreyfa sig samtals 2026 km á árinu 2026 – á þann hátt sem hentar hverjum og einum sem best.Verkefnið snýst fyrst og fremst um að hvetja til hreyfingar hver svo sem óska hreyfing hvers og eins er.
Hvað felst í áskoruninni:
Að fara með einhverjum hætti alls 2026 kílómetra á árinu 2026
Sem jafngildir:
• 5,5 km á dag
• 39 km á viku
Allir þátttakendur sem ljúka 2026 km eða meira, en hámarkið er 400 manns, fá glæsilegan og hvetjandi verðlaunapening 🏅 – tákn um seiglu, samviskusemi og persónulegan árangur.
🏅 Af hverju færðu verðlaunapeninginn áður en áskoruninni er lokið?
- Sumir kjósa að hengja hann upp strax sem daglega hvatningu í að hreyfa sig.
• Aðrir geyma hann þar til markmiðinu er náð og taka hann fram með stolti þegar 2026 km eru í höfn.
• Það er engin ein rétt leið – þú velur það sem hvetur þig mest.
Hvernig safnar þú kílómetrum?
Það er algjörlega undir þér komið hvernig þú safnar þínum kílómetrunum:
• gangandi
• hlaupandi
• hjólandi
• syndandi
• á skíðum
• á skautum
• á róðrarvél
• á crosstrainer
… allt þetta í bland og allt annað sem fær þig upp úr sófanum og út í hreyfingu.
Hreyfing til og frá vinnu telur líka – að ganga eða hjóla í vinnuna, göngutúrar með hundinn og dagleg útivera þar sem kílómetrar eru mældir, allt telst með.
Hvernig má skrá hreyfinguna
Hreyfingin er skráð í einfalt og skilvirkt kerfi sem heitir Sportstiming https://www.sportstiming.dk sem er danskt og hefur verið starfrækt í 7 ár með manni að nafni Rico Eiersted.
Til að halda utan um þína hreyfingu
- Þú getur notað snjallúr eða app í símanum.
• Þú getur stofnað frían STRAVA aðgang þá skráist vegalengdin sjálfkrafa inn í kerfið.
• Einnig er hægt að handskrá kílómetra á þínu svæði í Sportstiming.
Af hverju
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með að minnsta kosti 30 mínútna hreyfingu á dag – hér geturðu sameinað markmið og heilbrigði á einfaldan hátt. 2026 er skemmtileg, hvetjandi og aðgengileg áskorun fyrir alla sem vilja hreyfa sig meira, setja sér langtímamarkmið og setja heilsuna í forgang – skref fyrir skref, yfir allt árið og ár eftir ár í framhaldinu.
Það er ekki of seint að skrá sig til leiks þar sem að öll hreyfing frá 1. janúar 2026 og allt síðan þá má skrá inn en margir eru með kílómetra skráða inn í úrin sín eða á Strava árið um kring og geta því leitað til baka.
Hvað getur átakið gert fyrir þátttakendur
Hver og einn fær hvatningu, en hver og einn getur líka veitt öðrum hvatningu – það er oft það besta við svona verkefni.
Skráningargjald:
39 euros (um 6000 kr)
Það sem er innifalið í skráningargjaldinu er:
* Flott medalía
* Aðgangur að lokaðri Facebook-grúppu þar sem allir eru til staðar fyrir hvern annan. Við vinnum sama allt árið til að hvetja hvert annað og peppa og til að halda öllum á réttri braut í átt að markmiðinu sínu. Eftir skráningu færðu kvittun frá Sportstiming með gagnlegum upplýsingum og tengli inn á Facebook-hópinn Áskorun ársins 2026 / We Challenge the Year 2026.
Í hópnum verða allir þátttakendur hluti af samheldnu samfélagi þar sem þú getur:
• spjallað við aðra þátttakendur
• fengið hugmyndir um áhugaverða hreyfingu eða hópa sem gaman er að hreyfa sig með
• fengið hvatningu til að komast út – jafnvel þegar veðrið er ekki upp á sitt besta
• búið til viðburði til að hreyfa þig með öðrum
• deilt myndum og upplifunum af æfingum og þannig hvatt aðra áfram
❤️ Fyrir gott málefni
Rúsínan í pylsuendanum - Ágóðinn sem safnast rennur til
- Íþróttasamtaka fyrir fatlaða (ÍF) – www.ifsport.is
• FRÍ – Hlaupamálefni - Styðja við yngri hlaupara hjá FRÍ með t.d. fræðslu og æfingabúðum – www.fri.is
👥 Skipuleggjendur
Áskorun ársins 2026 – We Challenge the Year 2026 er skipulögð af:
• Tonie Gertin Sørensen, hjúkrunarfræðingi, hlaupara og áhugakonu um hreyfingu
Reykjavík, Ísland askorunarsins@gmail.com
- Rico Eiersted
Tengiliður við Sportstiming og eigandi Coast2Coast, Danmörk
Stökktu því með í þessa frábæru áskorun og gerðu 2026 að árinu þar sem þú nærð 2026 kílómetrum! 💪
Áskorun ársins 2026 – We Challenge the Year 2026. ! 🚀
