Hjólað í vinnuna 2026
Hjólað í vinnuna hefst 1. maí og líkur mánuði síðar, þann 31. maí en verkefnið hefur verið haldið árlega síðan árið 2003 og laðað að þúsundir einstaklinga sem vilja nýta hjól sem ferðamáta. Hér má lesa ýmsar áhugaverðar staðreyndir um viðburðinn, hvernig þátttaka hefur margfaldast í gegnum árin og aðrar áhugaverðar staðreyndir. https://hjoladivinnuna.is/um-hjolad/
Hverjir geta tekið þátt?
Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu. Dæmi er að hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta og svo framvegis. Þeir sem nýta almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá þarf að skrá þá vegalengd sem gengin eða hjóluð er til og frá stoppistöð
Hvernig skrái ég mig?
Það er einfalt að skrá sig til leiks með því að smella á "Innskráning" á heimasíðu Hjólað í vinnuna og annað hvort stofna eða ganga í lið. Þeir vinnustaðir sem eru með starfsstöðvar erlendis, mega klárlega hvetja þá starfsmenn til þátttöku. Bara gaman að allir geti verið með!
Nánari upplýsingar er að finna hér: hjoladivinnuna.is
Heilsutorg hvetur alla til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra til þátttöku..
