Fara í efni

Hafnarfjarðarhlaupið 11. júní

Hafnarfjarðarhlaupið verður haldið í fjórða sinn fimmtudaginn 11. júní kl. 20:00. Hlaupin verður frábær leið frá miðbæ Hafnarfjarðar um íbúða- og atvinnusvæði hafnarinnar og til baka í miðbæinn. 5 km hlauparar fara einn hring en 10km tvo hringi. Flott og flöt leið og allir velkomnir, engin aldurstakmörk. 500 krónur af hverju þátttökugjaldi munu renna til styrktar Degi Loga Norðdal Atlasonar, 15 ára efnilegum frjálsíþróttastrák, sem greindist með krabbamein fyrir nokkrum mánuðum.
Hafnarfjarðarhlaupið fer fram 11. júní á flatri og flottri braut í hjarta Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarhlaupið fer fram 11. júní á flatri og flottri braut í hjarta Hafnarfjarðar

Hafnarfjarðarhlaupið verður haldið í fjórða sinn fimmtudaginn 11. júní kl. 20:00. Hlaupin verður frábær leið frá miðbæ Hafnarfjarðar um íbúða- og atvinnusvæði hafnarinnar en til að búa til möguleika á einni hröðustu götuhlaupabraut landsins hefur Hafnarfjarðarhöfn og Eimskip opna sérstaklega tollsvæði sitt af þessu til efni. Frjálsíþróttadeild FH í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ, Fjarðarkaup, Nike og fleiri styrktaraðila stendur að hlaupinu.


Hlaupaleiðin
• Boðið er upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km
• Hlaupaleiðin er marflöt og býður þar með upp á möguleika á góðri bætingu
• Hlaupið er vottað af FRÍ
• Hringurinn er 5 km og þátttakendur í 10 km hlaupi hlaupa tvo hringi
• Ekkert aldurstakmark er í hlaupið

Leiðarlýsing
Ræst er á Strandgötu við Thorsplan. Hlaupið er eftir Vesturgötu og út fyrir Norðurbakkann. Þar er farið inn á Strandstíginn og Norðurbakkinn hlaupinn til baka. Við strætóskýli á móts við Íþróttahúsið er farið út á Strandgötu og hlaupið út á höfnina við Hafró. Þar er farið inn á lokað svæði Hafnarfjarðarhafnar og áfram að lokuðu athafnasvæði Eimskips. Þaðan er farið að Óseyrarbraut að Fornubúðum og Strandgatan hlaupin til baka. Við Hafnarfjarðarkirkju er beygt til hægri af hringtorgi við Lækjargötu og inn Strandgötu að Thorsplani.

Skráning
Opið er fyrir netskráningu til miðnættis miðvikudaginn 10. júní. Þau sem skrá sig fyrir miðnætti sunnudaginn 7. júní fara í pott þar sem m.a. verður dregið út kr. 50.000,- gjafabréf frá Fjarðarkaupum.
Skráning fer fram hér
https://hlaup.is/vidburdir/hafnarfjardarhlaupid-11-06-2026/skraning-hafnarfjardarhlaupid-2026/#/1

Þátttökugjöld eru eftirfarandi:
• 10 km kr. 5.500 en kr. 3.500 fyrir 15 ára og yngri (fædd 2011 og síðar)
• 5 km kr. 4.500 en kr. 2.500 fyrir 15 ára og yngri (fædd 2011 og síðar)

Ekkert aldurstakmark er í hlaupið.

Afhending gagna
Afhending keppnisnúmera fer fram í Fjarðarkaupum þriðjudaginn 9. júní kl 16-18, miðvikudaginn 10.júní kl 13-18 og fimmtudaginn 11. júní kl 13-17. Kári Steinn Karlsson, fyrrum Íslandsmethafi í maraþonhlaupi, mun verða í Fjarðarkaupum miðvikudaginn 10. júní milli kl 16:30 og 18:00 og gefa keppendum góð ráð.

Verðlaun:
Verðlaunafé í 10 km hlaupinu er í boði Fjarðarkaupa og er einkar glæsilegt eða samtals 200.000 kr. og sem hér segir.
1. sæti karla og kvenna kr. 50.000,-
2. sæti karla og kvenna kr. 30.000,-
3. sæti karla og kvenna kr. 20.000,-

NIKE gefur verðlaun í 5 km fyrir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna.

Nánari upplýsingar
Frjálsíþróttadeild FH: Sigurður P. Sigmundsson, siggip@hlaup.is

Neðst á Hlaup.is síðunni má sjá greinargott kort af leiðinni
https://hlaup.is/vidburdir/hafnarfjardarhlaupid-11-06-2026/Ha