Drulluhlaup UMFÍ og Krónunnar 2026
Í Drulluhlaupinu er lögð áhersla á skemmtilega hreyfingu, gleði og samvinnu.
• Hvar: Íþróttamiðstöðinni að Varmá, Mosfellsbæ.
- Dagsetning: Laugardagurinn 15. ágúst 2026.
- Hvenær: Kl. 09:30 - 15:00 (Ræst út í hollum á nokkurra mínútna fresti).
• Ráshópar: Við skráningu velur þú ráshóp með rástíma sem hentar þér.
• Hlaupaleið: Leiðin er samtals 3,5 km og inniheldur 21 hindrun.
• Upphaf: Við Íþróttamiðstöðina að Varmá.
• Endir: Við Íþróttamiðstöðina að Varmá.
• Umsjón: Ungmennafélagið Afturelding ásamt UMFÍ.
Hvað kostar og hvernig fer skráning fram?
Við höfum stillt verðið þannig að allir geta verið með – hvort sem þú kemur einn eða með hóp!
|
næsti maður inn greiðir: |
fjöldi |
samtals |
|
1 |
3.900 |
|
|
3.000 |
2 |
6.900 |
|
2.000 |
3 |
8.900 |
|
2.000 |
4 |
10.900 |
|
1.500 |
5 |
12.400 |
|
1.500 |
6 |
13.900 |
|
|
|
|
|
|
- o.s.frv. (Aukaeinstaklingur eftir 4 í hóp greiðir 1.500 kr. )
- ATH afsláttur á hópinn reiknast í greiðsluferlinu! Þú safnar bara í körfuna öllum þátttakendum og afslátturinn kemur inn áður en þú greiðir.
Geta öll tekið þátt?
Drulluhlaup Krónunnar og UMFÍ er fyrir alla fjölskylduna og allt fólk sem hefur gaman af því að taka þátt í fjörugum viðburði. Froðuvél verður á rás svæðinu fyrir yngstu börnin til að leika sér í. Þess vegna er upplagt fyrir foreldra og frænkur og frændur að koma með alla fjölskylduna og hvetja þátttakendur í gegnum skítverkið :)
Svona er Drulluhlaupið
Hlaupaleiðin er drulluskemmtileg og krefjandi. Leiðin er 3,5 km langur hringur í Varmárdalnum með fjölda stórskemmtilegra hindrana sem þarf að yfirstíga. Fjölskyldu- og/eða vinahópar hlaupa saman og hjálpast að við að komast í gegnum hindranirnar eða leysa saman þrautirnar.
Hlaupaleiðin er skemmtileg og krefjandi en samt ættu öll 8 ára og 80 ára að komast í gegnum hana með aðstoð foreldra og/eða forráðarmanna. Yngri börn ættu að komast í gegnum flestar þrautir með aðstoð foreldra og alltaf er hægt að sleppa/fara framhjá þraut ef einhver treystir sér ekki í hana.
U.þ.b. 10 manna hópar verða ræstir út með u.þ.b. 2 mínútna millibili frá kl. 09:30 - 12:00.
Þú velur rástíma við skráningu sem hentar þér.
Rás- og endamark er við Íþróttahúsið við Varmá og þar verður dúndrandi partýstemning frá fyrstu mínútu. Engar áhyggjur þótt þú sért kominn langt inn í myrkviði Drulluhlaups Krónunnar því partýið heldur áfram alla leið.
Víða á leiðinni verður hægt að hvetja keppendur áfram og njóta samverustundar með fjölskyldum og vinum sem ösla í gegnum drullupolla og vaða aur og mold til að komast saman á leiðarenda.
Er hægt að skola af sér eftir hlaupið?
Já! Skolstöð verður á staðnum og frítt í sund fyrir alla þátttakendur í Varmárlaug.
Afhending hlaupagagna
Hlaupagögn verða afhent í verslun Krónunnar í Mosfellsbæ fimmtudaginn 13. Ágúst milli kl. 17:00 og 19:00. Fyrir þau sem ómögulega komast að sækja gögnin fyrirfram þá verður stöð við Varmá fyrir hlaup þar sem hægt verður að sækja gögnin. Við hvetjum alla til að sækja gögnin áður til að minnka örtröðina og auðvelda ræsingu í hlaupið.
Koma-so
