Fara í efni

Heimilisstörf eru góð hreyfing

Ef tilhugsunin um að fara í ræktina gerir þig örmagna þá eru þetta gleðifréttir fyrir þig.
Heimilisstörf eru góð hreyfing

Ef tilhugsunin um að fara í ræktina gerir þig örmagna þá eru þetta gleðifréttir fyrir þig.

Ný viðamikil rannsókn hefur leitt í ljós að það hefur jafn góð áhrif á heilsuna að fara í ræktina, út að ganga og að vinna heimilis- eða garðverk. Samkvæmt nýrri rannsókn hverrar niðurstöður voru nýlega birtar á vefnum aarp.org leiða í ljós að heimilisstörf geta verið jafn áhrifarík fyrir líkamlega hreysti og hlaup eða ræktarfeðir. Þetta gildir sér í lagi þegar kemur að því að draga úr líkum á hjartasjúkdómum og ótímabærum dauðdaga.

Það voru kanadískir vísindamenn sem stóðu að rannsókninni. Þeir fylgdu eftir 130 þúsund manns í 17 löndum, fólki sem bjó við misjöfn kjör og efnahag. Rannsóknin spannaði sjö ár. Hún hófst árið 2003 og henni lauk árið 2010. Samkvæmt niðurstöðum hennar minnkuðu þeir sem hreyfðu sig í þrjátíu mínútur á dag fimm daga vikunnar áhættuna á ótímabærum dauðdaga um 28 prósent og líknurnar á að hjartasjúkdómum minnkuðu um fimmtung.

Öll hreyfing er til góðs sama hvort fólk tekur á því í ræktinni . . . LESA MEIRA