Fara í efni

Avocado og mangósalsa

Þessi salsa-sósa er rosa fersk og góð og ekki síður einföld og bráðholl!! Smellpassar með fisk, kjúkling og grænmetisréttum, tala nú ekki um allt sem er grillað eða bara sem salatdressing.
Innihald í Avocado og mango sósu
Innihald í Avocado og mango sósu

Avocado og mangósalsa

Þessi salsa-sósa er rosa fersk og góð og ekki síður einföld og bráðholl!

Smellpassar með fisk, kjúkling og grænmetisréttum, tala nú ekki um allt sem er grillað eða bara sem salatdressing.

Hráefni: 

½ Laukur (fínt saxaður)

1 stk vorlaukur (skorin í þunnar sneiðar)

1 stk rauður chili ,steinhreinsaður(mjög fínt saxaður)

½ mangó vel þroskaður (skorin í litla bita)

1 stk avocado , vel þroskaður (skorin í litla bita)

2 stk  tómatar (skornir í litla teninga)

½ búnt kóríander, ferskt (gróft saxað)

1 tsk taco seasoning

1 msk hvítlauksolía

½ dl ólívuolía

Safi og börkur af einni lime

1 msk hunang

Salt og pipar

Aðferð:

Öllu blandað saman og smakkað til með salti og pipar, látið standa í lágmark 20 mín fyrir notkun.