Fara í efni

Ármannshlaupið – Aukakrónuhlaup, 10 km og 5 km

Aukakrónuhlaup Ármanns verður haldið miðvikudaginn 8. júlí en hlaupið er Íslandsmótið í 10km götuhlaupi. Fyrir þá sem kjósa styttri veglengd verður nú boðið upp á 5 km götuhlaup sem verður aðskilið frá 10 km hlaupakeppninni.
Aukakrónuhlaupið 8. júlí
Aukakrónuhlaupið 8. júlí

Aukakrónuhlaup Ármanns verður ræst fyrir utan höfuðstöðvar Landsbankans í Reykjastræti, miðvikudaginn 8. júlí. 2026. 5 km eru ræstir kl. 19.00 og 10 km hlaup ræst kl. 20.00.

 

Nokkrar staðreyndir um hlaupið:

*Hlaupið hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir flata og hraða braut

*Peningaverðlaun í formi inneignar hjá Aukakrónur verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna í 10 km, auk sigurvegara í 5 km

*Vegleg útdráttarverðlaun í boði

*Hlaupið er Íslandsmót í 10 km hlaupi og keppt í flokkum 12 ára og upp úr

 

Skráning, skráningarfrestur og skráningargjöld

Skráning fer fram hér https://netskraning.is/aukakronuhlaup-armanns/

5km, 4.000 kr til 1.júlí, 4.500 kr 2. - 8. júlí

10km, 4.500 kr til 1. júlí, 5.500 kr 2. - 8. júlí

 

Afhending keppnisnúmera

Afhending keppnisnúmera fer fram í höfuðstöðvum Landsbankans, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík, mánudaginn 6. júlí og þriðjudaginn 7. júlí milli kl. 16 og 18. Einnig er hægt að nálgast hlaupanúmerin þar á hlaupdegi frá kl. 16 þangað til hálftími er í ræsingu. Gengið er inn um aðalinngang Landsbankans en næg bílastæði má finna í bílastæðakjallara undir Landsbankanum.

Nafnabreyting

Hægt er að gera nafnabreytingu á skráningu til og með þriðjudagsins 7. júlí, ekki verður hægt að gera nafnabreytingu á hlaupdegi.

 

Hlaupaleiðin - 10 km

Leiðin er löglega mæld og hlaupið vottað af FRÍ. Ræst er við höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjastræti 6 kl. 20.00. Við ræsingu er hlaupið til austurs út á Hörputorg, þaðan er beygt út á hjóla og göngustíg meðfram Kalkofnsvegi, beygt inn meðfram Geirsgötu til vesturs og hlaupið um Suðurbugt inn á Miðbakka og þaðan um Austurbakka að Hörputorgi. Þaðan er haldið áfram í austur áfram inn á göngustíg meðfram Sæbrautinni, þar sem stígar eru aðskildir er hlaupið á hjólastíg í austurátt. Eftir stígum er haldið sem leið liggur að vitanum við Viðeyjarferjuna þar sem snúið er við og hlaupið til baka eftir göngustíg. Þegar yfir Hörputorg er komið er haldið rakleiðis í átt að Reykjastræti þar sem endamarkið er við hlið höfuðstöðva Landsbankans. Sjá nánar varðandi ræsingu og hlaupaleið, á korti inn á skráningarsíðu hlaupsins.

Hlaupaleiðin - 5 km.

Ræst er við höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjastræti 6 kl. 19.00. Við ræsingu er hlaupið til austurs yfir Hörputorg og inn á göngustíg meðfram Sæbrautinni og þar sem göngustígar eru tvískiptir er hlaupið á hjólastíg í austurátt. Þegar komið er í námunda við dælustöð við Kirkjusand er snúið við inn á göngustíg og hlaupið á honum í vesturátt. Þegar yfir Hörputorg er komið er haldið rakleiðis í átt að Reykjastræti þar sem endamarkið er við hlið höfuðstöðva Landsbankans. Sjá nánar varðandi ræsingu og hlaupaleið, á korti inn á skráningarsíðu hlaupsins.

Aðstaða

Aðgengi verður fyrir hlaupara og aðra gesti í anddyri höfuðstöðva Landsbankans Reykjastræti 6 á hlaupdegi. Hlauparar eru hvattir til að nýta sér almenningssamgöngur eða aðra virka ferðamáta. Fyrir þá sem koma akandi er úrval bílakjallara í næsta nágrenni, einn slíkur er undir höfuðstöðvum Landsbankans og hægt er að ganga úr bílakjallaranum beint upp í anddyri bankans. Hlauparar geta fengið að geyma fatnað innandyra meðan á hlaupinu stendur auk þess að komast á salerni.

Verðlaun

Vegleg útdráttarverðlaun frá samstarfsaðilum Aukakróna Landsbankans.

5 km hlaup:

Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. Auk þess fá sigurvegarar í karla og kvennaflokki 30 þúsund Aukakrónur hvort.

10 km hlaup:

Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. Auk þess fá efstu þrír af hvoru kyni Aukakrónur, 80.000 kr Aukakrónur fyrir 1. sæti, 45.000 kr Aukakrónur fyrir 2. sæti og 20.000 kr Aukakrónur fyrir 3. sæti.

ALDURSFLOKKAR

Í samræmi við reglugerð FRÍ um götuhlaup. Tekið er fram að samkvæmt reglugerðinni geta einstaklingar yngri en 12 ára ekki fengið árangur skráðan í afrekaskrá, þeim er þó heimilt að skrá sig í hlaupið. Keppt er til verðlauna í 10 km hlaupinu í eftirfarandi aldursflokkum beggja kynja þar sem sigurvegarinn fær verðlaunapening:

12 ára

13 ára

14 ára

15 ára

16-17 ára

18-19 ára

20-22 ára

23-39 ára

40-44 ára

45-49 ára

50-54 ára

55-59 ára

60-64 ára

65-69 ára

70-74 ára

75-79 ára

80-84 ára

85-89 ára

90 ára og eldri

 

Nánari upplýsingar: Frjálsíþróttadeild Ármanns
aukakronuhlaup@armannfrjalsar.com