Fara í efni

Ármannshlaupið 2. júlí

Aukakrónuhlaup Ármanns verður ræst fyrir utan höfuðstöðvar Landsbankans, Reykjastræti 6 miðvikudaginn 2. júlí klukkan 20:00. Hlaupið er Íslandsmeistaramótið í 10km götuhlaupi og býður upp á hraða braut og einstaklega vegleg verðlaun.
Ármannshlaupið 2. júlí

Aukakrónuhlaup Ármanns

Aukakrónuhlaup Ármanns verður ræst fyrir utan höfuðstöðvar Landsbankans, Reykjastræti 6 miðvikudaginn 2. júlí klukkan 20:00. Hlaupið er Íslandsmeistaramótið í 10km götuhlaupi og býður upp á hraða braut og einstaklega vegleg verðlaun.

  • Hlaupið hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir flata og hraða braut og þar er engin breyting á enda er hlaupið Íslandsmótið í 10 km götuhlaupi.
  • Peningaverðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. 60 þúsund aukakrónur fyrir 1. sæti, 30 þúsund fyrir 2. sæti og 15 þúsund fyrir 3. sæti.
  • Sigurvegarar í hverjum aldursflokki karla og kvenna fá 10 þúsund aukakrónur í verðlaun hver, auk þess sem vegleg útdráttarverðlaun verða veit sem allir eiga jafnan möguleika á að næla sér í.

Skráning

Skráning fer fram inni á www.netskraning.is en forskráningu lýkur föstudaginn 27. júní á miðnætti. Skráningargjald er 4.000 krónur en 5.000 krónur eftir að forskráningu lýkur. Afhending keppnisnúmera fer fram í höfuðstöðvum Landsbankans, Reykjastræti 6, 30. júní og 1. júlí, kl. 16-18. Gengið er inn um aðalinngang. Einnig verður hægt að nálgast keppnisnúmer þar á hlaupdegi frá kl. 16 til 19.30.

Hlaupaleiðin

Leiðin er löglega mæld og hlaupið vottað af FRÍ. Ræst er við höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjastræti 6. Við ræsingu er hlaupið til austurs út á Hörputorg, þaðan er beygt út á hjóla og göngustíg meðfram Kalkofnsvegi, beygt inn meðfram Geirsgötu til vesturs og hlaupið um Suðurbugt inn á Miðbakka og þaðan um Austurbakka að Hörputorgi. Þaðan er haldið áfram í austur áfram inn á göngustíg meðfram Sæbrautinni. Eftir honum er haldið sem leið liggur að vitanum við Viðeyjarferjuna þar sem snúið er við og hlaupið til baka eftir sömu leið, hægri umferð gildir á göngustígnum. Þegar yfir Hörputorg er komið er haldið rakleiðis í átt að Reykjastræti þar sem endamarkið er við hlið höfuðstöðva Landsbankans.

Inni á skráningarsíðunni má sjá hlaupaleiðina sem og nákvæma útfærslu á upphafi og enda hlaupsins. 

Aðstaða

Aðgengi verður fyrir hlaupara og aðra gesti í anddyri höfuðstöðva Landsbankans Reykjastræti 6 hlaupadaginn. Hlauparar eru hvattir til að nýta sér almenningssamgöngur eða aðra virka ferðamáta. Fyrir þá sem koma akandi er úrval bílakjallara í næsta nágrenni, einn slíkur er undir höfuðstöðvum Landsbankans og hægt er að ganga úr bílakjallaranum beint upp í anddyri bankans. Hlauparar geta fengið að geyma fatnað innandyra meðan á hlaupinu stendur auk þess að komast á salerni.

Aldursflokkar- og skipting

Aldursflokkaskipting er sem hér segir:

12-14 ára 15-17 ára 18-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára

70-79 ára 80-89 ára 90 ára og eldri

Í samræmi við reglugerð FRÍ um götuhlaup geta einstaklingar yngri en 12 ára ekki fengið árangur skráðan í afrekaskrá, þeim er þó heimilt að skrá sig í hlaupið.

Nánari upplýsingar veitir Örvar Ólafsson orvar@frjalsar.is