Fara í efni

Annað skurðarbrettið er sannkölluð bakteríusprengja: Hvort brettið er það?

Annað skurðarbrettið er sannkölluð bakteríusprengja: Hvort brettið er það? Á mörgum heimilum eru til skurðarbretti úr plasti eða tré, til nota í eldhúsinu. En það er mikill munur á þeim bakteríufjölda sem leynist í brettunum. Vísindamenn hafa rannsakað þetta nokkrum sinnum í gegnum tíðina og niðurstöðurnar eru alltaf á einn veg.
Endurbirt frá Pressan.is/Veröldin
Endurbirt frá Pressan.is/Veröldin

Á mörgum heimilum eru til skurðarbretti úr plasti eða tré, til nota í eldhúsinu.

En það er mikill munur á þeim bakteríufjölda sem leynist í brettunum.

Vísindamenn hafa rannsakað þetta nokkrum sinnum í gegnum tíðina og niðurstöðurnar eru alltaf á einn veg.

 

Það eru plastbrettin sem eru sannkallaðar bakteríusprengjur en trébrettin eru mun betri hvað þetta varðar og innihalda ekki nærri því eins margar bakteríur. Vísindamenn segja að trébretti sem hafa verið mikið notuð og hafa mörg för eftir hnífa verði næstum jafn hrein og ný trébretti eftir þvott. Plastbretti með mörgum hnífsförum sé hins vegar ómögulegt að þrífa nægilega vel og sótthreinsa handvirkt. Með handvirkt eiga þeir við að fólk noti heitt vatn, uppþvottalög og svamp.

Vísindamenn segja að bakteríur sé einnig að finna í trébrettum en að þeim fjölgi ekki og þær deyji smátt og smátt. Það sama eigi ekki við um plastbretti. Vefmiðillin an.no segir að samkvæmt niðurstöðum vísindamanna þá telji þeir að plastbretti geti verið hættuleg heilsu fólks en það séu trébretti ekki.

Eldri rannsóknir hafa einnig staðfest þetta en byrjað var að rannsaka þetta á tíunda áratug síðustu aldar. Hugsanlegt er talið að bakteríur sem sitja á trébrettum sitji einfaldlega fastar á þeim og geti ekki komist í matinn og þegar vatn komist síðan í snertingu við trébrettin skolist bakteríurnar af því.

Fólk má þó ekki láta hjá líða að þvo trébrettin og það verður að þvo þau vel og vandlega til að tryggja að fyllsta hreinlætis sé gætt.

 

Tengt efni: