Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga þann 10. september
											Í tilefni af Alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga mánudaginn 10. september 2018 verður haldið málþing í húsnæði Decode við Sturlugötu 8, milli kl. 15:00 – 17:00 þar sem auk annarra áhugaverðra erinda verða kynntar niðurstöður kannana meðal framhaldsskólanema um sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir ungs fólks á Íslandi.
Kyrrðarstundir verða einnig haldnar, á fimm stöðum á landinu, til að minnast þeirra sem hafa fallið fyrir eigin hendi.
Málþingið - Stöndum saman gegn sjálfsvígum
Fundarstjóri:  Þorsteinn Guðmundsson, leikari og verkefnisstjóri Bataskóla Íslands
Dagskrá:
15.00 Opnunarávarp
- Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
 
15.15 Sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir ungs fólks á Íslandi: Niðurstöður kannana meðal framhaldsskólanema frá 2000 til 2016.
- Ingibjörgu Eva Þórisdóttur, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu og Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis.
 
15.40 Píeta samtökin: Fyrstu 6 mánuðirnir í móttöku og meðferð.
- Edda Arndal, forstöðumaður Pieta á Íslandi.
 
16.00 Kaffi & kleinur.
16.15 Hugurinn þinn.
- Alda Karen Hjaltalín, ráðgjafi og fyrirlesari í New York
 
17.00 Lok.
Sjá síðu fyrir viðburðinn á Facebook Opnast í nýjum glugga
Kyrrðarstundir
Kyrrðarstundir til minningar um þá sem hafa fallið fyrir eigin hendi verða í Dómkirkjunni, Akureyrarkirkju, Egilsstaðakirkju og Ísafjarðarkirkju að kvöldi mánudagsins 10. september og í Útskálakirkju að kvöldi sunnudagsins 9. september.
Dagskrá kyrrðarstundarinnar í Dómkirkjunni í Reykjavík 10. september kl. 20:00.
- Sr. Jóna Hrönn Bolladóttur flytur hugvekju
 - Eyþór Ingi Gunnlaugsson flytur tónlistaratriði
 - Heiðrún Jensdóttir aðstandandi segir frá reynslu sinni
 - Jónas Þórir verður organisti
 
Í lok stundarinnar verður kveikt á kertum til að minnast ástvina sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Allir velkomnir.
Sjá viðburð á Facebook Opnast í nýjum glugga
Eftirtaldir aðilar standa að dagskránni:
- Embætti landlæknis
 - Geðhjálp
 - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
 - Hugarafl
 - Landspítalinn - geðsvið
 - Minningarsjóður Orra Ómarssonar
 - Ný dögun, stuðningur í sorg
 - Pieta samtökin
 - Rauði krossinn
 - Þjóðkirkjan
 
Frekari upplýsingar veita:
Salbjörg Bjarnadóttir
geðhjúkrunarfræðingur 
hjá Embætti landlæknis
salbjorg@landlaeknir.is Opnast í nýjum glugga
s. 862 8156
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir
gjgudlaugs@gmail.com Opnast í nýjum glugga
Anna G. Ólafsdóttir
framkvæmdastjóri Geðhjálpar
ago@gedhjalp.is 

