Fara í efni

Ætlar þú að hlaupa Laugaveginn í sumar ?

Hlaup.is býður upp á 4 mánaða undirbúningsnámskeið fyrir Laugavegshlaupið í fimmta skiptið, frá 4. mars til 12. júlí. Þjálfarar eru Sigurður P. Sigmundsson og Torfi H. Leifsson.
Laugavegshlaup 2013
Laugavegshlaup 2013

Hlaup.is býður upp á 4 mánaða undirbúningsnámskeið fyrir Laugavegshlaupið í fimmta skiptið, frá 4. mars til 12. júlí. Þjálfarar eru Sigurður P. Sigmundsson og Torfi H. Leifsson.

Árlegur fjöldi hingað til hefur verið á bilinu 30-40 manns og hafa þátttakendur lokið hlaupinu á bilinu 5:00 klst til 9:00 klst. Námskeiðið hentar því fólki á öllum aldri og af mismunandi getustigum. Tekið er mið, í persónulegum áætlunum, af getu hvers og eins og áætlanir sniðnar að markmiðum hvers hlaupara, mánuð í senn.  Allir hafa náð góðum árangri, hver á sinn hátt, en fyrst og fremst er lögð áhersla á að fólk hafi ánægju af þessu verkefni, bæði undirbúningnum og hlaupinu sjálfu.

Laugavegshlaup

Í undirbúningnum felst eftirfarandi:

  • Persónuleg áætlun allan tímann, en til 4 vikna í senn, sem tekur mið af fyrri hlaupareynslu, meiðslum, núverandi stöðu og fleiru.
  • Farið verður sérstaklega í styrktaræfingar sem nýtast fyrir Laugavegshlaupið.
  • Ein samæfing í miðri viku. Í Laugardalnum fram í miðjan apríl en eftir það til skiptis í Laugardal og Heiðmörk ásamt fleiri stöðum.
  • Ráðgert er að fara sameiginlega í nokkur fjallahlaup (Esjan, Hengillinn, Helgafell) í maí og júní.
  • Fyrirlestur í upphafi þar sem farið verður yfir alla þætti í undirbúningi, æfingarnar, útbúnað og fleira.
  • Aðgangur að þjálfurunum allan tímann í tölvupósti og/eða í síma.
  • Farið yfir ýmsa þjálffræðilega þætti og frekari undirbúning á æfingum.
  • Fyrirlestur einni viku fyrir Laugaveginn þar sem farið verður yfir lokaundirbúninginn.
  • Öllum sem taka þátt í námskeiðinu verður fylgt eftir í Laugavegshlaupinu. Þjálfarar verða til staðar við upphaf hlaups og taka á móti öllum við endamarkið

laugavegshlaup

Kíktu á myndir frá námskeiðinu á Facebook frá 2011 og á hlaup.is frá námskeiðinu 2012.

Skráning og nánari upplýsingar á hlaup.is.