Fara í efni

Á VEISLUBORÐIÐ - einfalt og gott

Ljósmynd: Áslaug Snorradóttir
Ljósmynd: Áslaug Snorradóttir

Það er hægt að nota spírur í svo margt annað en salöt. 

Hér er ein hugmynd. 

Gúrkusnitta með radísuspírum:

 

Hráefni: 

1 gúrka, skorin í ca 3 cm bita
2 box geitasmurostur með jurtum
20 g radísuspírur
Geitaosturinn er settur í sprautupoka og sprautaður á gúrkubitana. Skreytt með radísuspírum. 


Ljósmynd: Áslaug Snorradóttir.