Fara í efni

4 atriði sem standa í vegi fyrir markmiðunum þínum

Af hverju ná flestir EKKI markmiðunum sínum? Það er ekkert eitt svar við því, engin ein töfralausn. EN það eru nokkrir hlutir sem við getum gert til þess að auka líkur á árangri, til þess að minnka áhættuna á að detta ofaní holu hindrana og komast ekki upp aftur. Í dag langar mig að deila fjórum þeirra með þér í þeirri von að þú vandir betur markmiðasetninguna þína og hafir þetta í huga næst þegar þú ætlar að ráðast í nýtt verkefni eða gera tilraun til að breyta venjum, þá sérstaklega varðandi heilsuna.
4 atriði sem standa í vegi fyrir markmiðunum þínum

Af hverju ná flestir EKKI markmiðunum sínum? 

Það er ekkert eitt svar við því, engin ein töfralausn. EN það eru nokkrir hlutir sem við getum gert til þess að auka líkur á árangri, til þess að minnka áhættuna á að detta ofaní holu hindrana og komast ekki upp aftur. 

Í dag langar mig að deila fjórum þeirra með þér í þeirri von að þú vandir betur markmiðasetninguna þína og hafir þetta í huga næst þegar þú ætlar að ráðast í nýtt verkefni eða gera tilraun til að breyta venjum, þá sérstaklega varðandi heilsuna. 

1. Þú tengist þeim ekki nægilega vel tilfinningalega og setur ekki í efstu forgangsröð

Eitt stórt atriði sem stoppar flesta við að ná markmiðunum sínum er að fólk tengist þeim ekki nógu miklum tilfinningalegum böndum. Þetta verður aldrei eitthvað sem það “verður að ná” heldur er alltaf í flokknum “þetta væri næz” eða “það væri nú gaman ef þetta mundi gerast”. 

Sérðu muninn? 

Á meðan þú notar orðalag eins og “ég ætla reyna” eða “kannski gæti þetta gerst” ertu því miður að halda þér fastri á sama stað. Því það er svo auðvelt að gefast upp við fyrsta hliðarskref varðandi markmið sem þú hefur ekki tengst, og segir þá við sjálfan þig. “Nú jæja, ég reyndi að minnsta kosti”. 

En þegar þú hefur tekið þessa innri ákvörðun um að þú ætlir eitthvað, og að það skuli gerast! Þá bakkar maður ekki við fyrstu hindrun sem kemur upp, því þær munu koma, það er eitt fyrir víst.  

Segðu frekar við sjálfan þig að “þú ætlir” og að “þú munir”,þessi litla breyting á orðalagi og hvernig þú talar um markmiðin þín munu skipta sköpun.

2. Þú missir einbeitinguna og gleymir þér í gömlu rútínunni þinni

Annað atriði er að fólk missir fókus á “af hverju” það byrjaði á ferðalaginu og af hverju þau vilja ná markmiðinu sínu. Hugurinn okkar er mjög auðveldlega afvegaleiddur, við erum fljót að missa einbeitingu, gleyma og byrja að elta næsta glansandi hlut. Það er uppá okkur komið að vera stöðugt að minna okkur á markmiðin okkar og af hverju við viljum ná þeim. Annars tekur gamall vani yfir og þú ert fljótt farin af nýju brautinni sem þú varst svo ákveðin í að fara á í upphafi. 

Skrifaðu markmiðin þín á stað þar sem þú sérð þau daglega, settu þau upp myndrænt eins og sem draumaveggspjald, í dagbókina þína eða á spegilinn, hugsaðu um þau á hverjum morgni, spurðu þig spurninga eins og, hvernig vil mér líða í dag? Hvernig ákvarðanir ætla ég að taka? 

Hvað sem hentar þér best og virkar fyrir þig sem áminning. 

3. Þú hefur ekki trú á sjálfan þig

Margir eru á þeim stað í dag að þeir hafa ekki trú á að þeir munu nokkurn tíma ná markmiðunum sínum yfir höfuð. Þú hefur kannski sett þér markmið og klúðrað því svo oft að þú ert meðvitað eða ómeðvitað byrjuð að segja við sjálfan þig  ,,ég get þetta ekki” , “af hverju að reyna, ég klúðra öllu hvort eð er” .

Þarna erum við komin í slæman vítahring, fyrri tilraunir hafa mistekist og því eru framtíðar tilraunir dæmdar til að gera það sama, þar sem viðkomandi hefur misst alla trú á sjálfan sig um að vera fær um breytingar. 

Ef þú ert á þeim stað þá hvet ég þig til þess að hugsa “af hverju ekki ég?” “af hverju get ég ekki breyst eins og aðrir?” 

Því það eru ótal mörg dæmi um fólk sem hefur náð fram varanlegum breytingumvarðandi heilbrigðan lífsstíl, ég sjálf meðtalin, og endalaust af konum sem hafa verið í þjálfun, sem eru lifandi dæmi um að þetta er mögulegt! Sama hversu margar misheppnaðar tilraunir hafa verið gerðar í fortíðinni. Þú getur þetta svo sannarlega, fortíðin þín þarf ekki að skilgreina framtíðina.

 

4. Fólk setur einungis markmið varðandi útlit

Þarna klikka margir! Því það er alls ekki nóg að setja aðeins markmið um kg. tölu eða six pack. Jú það getur hjálpað þér til að byrja með, en þegar erfiðu dagarnir koma upp og þig langar til þess að hætta, þá er það EKKI draumurinn um six packinn sem heldur þér á réttu brautinni. 

Þú þarft að vilja eitthvað meira, betri lífsgæði, meiri orku, meira jafnvægi, betri heilsu, minni líkur á sjúkdómum, meiri styrk (innri og ytri), að vera góð fyrirmynd fyrir börnin þín, geta hoppað á trampólíni með börnunum þínum án þess að verða uppgefin eftir 5 mínútur, vera glaðari í daglegu lífi, stolt af sjálfri þér o.s.frv. 

Þú þarft að finna hvað það er fyrir þig og hafa það ofarlega í huga, því einungis kg tölur munu ekki vera nóg til þess að halda hvatningunni gangandi til lengri tíma. 

Nú eru aðeins nokkrir dagar í að við byrjum í HIITFIT áskorun þar sem við köfum ennþá dýpra ofaní þessa umræðu og segjum frá hlutum sem fólk er að klikka á þegar kemur að markmiðasetningu og langtímabreytingum. 

Í hugaræfingunni sem fylgir HIITFIT áskorun segi ég þér einnig af hverju ég mæli EKKI með að byrja á SMART markmiðum og gef þér skref sem þú getur tekið í staðinn. 

Ég trúi því virkilega að þetta geti breytt því hvernig þú hugsar um markmið og muni hjálpa þér næst þegar þú vilt leggja af stað í “besta form lífs þíns” ferðalagið.

Þú færð einnig plan með heimaæfingum sem þú getur gert hvar sem er innan við 30 mín, uppskriftir, mikla fræðslu og hvatningu ásamt möguleikum á glæsilegum vinningum.

Það er því mikils til að vinna og þetta er allt saman ókeypis! 

Kláraðu sumarið með trompi og byrjaðu að setja niður skref fyrir langtímabreytingar sem endast út lífið! 

Smelltu hér til að skrá þig

Við byrjum mánudaginn 12 ágúst. 

Við vonumst innilega til að sjá þig!

Heilsukveðja,

Sara Barðdal

ÍAK einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi 

og HIITFIT teymið