Fara í efni

Tími til að gera ekki neitt

Tími til að gera ekki neitt

Hættu að skipuleggja sumarleyfið og slappaðu af segir Kamma Kronborg Heick á vef Danska ríkisútvarpsins.

Hættu við að fara í skemmtigarða, sólarstrandir eða í borgarferðir. Heick ráðleggur fólki þess í stað að draga upp púsluspilið og púsla, leggja kapal eða skríða upp í sófa með góða bók til að lesa. Það sé leiðin til að slappa af í fríinu og endurnæra sál og líkama. Hún segir að fólk æði oft beint úr annasamri vinnu í frí sem sé ofskipulagt. Fólk ætli að komast yfir allt á stuttum tíma, sjá óteljandi söfn, kirkjur, nýja áfangastaði og svo framvegis.

Að láta sér leiðast

Margar stofnanir í Kaupmannahöfn vilja þessa dagana vekja athygli fólks á það sé gott að eyða fríinu í rólegheitum. Þá tekur fólk sér tíma til að gera eitthvað óskipulagt þó ekki sé  annað en að elda mat, reita arfa, fara í göngutúr eða hreinlega láta sér leiðast. Lona Jensen fjölskylduráðgjafi tekur heilshugar undir þessar hugmyndir. Hún segir að Danir kunni ekki að taka því rólega.Ef við viljum halda í . . . LESA MEIRA