Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 5. september, keppt er í 5 km og 10 km og hefjast báðar vegalengdir kl. 12:30 en rásmark verður við Íþróttamiðstöðina.
Keppnisgögn eru afhent milli kl. 17-19 föstudagskvöldið 4. september í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Þeir sem koma samdægurs geta sótt gögn þangað á laugardeginum frá klukkan 11:00 og fram að ræsingu. Hlaupahaldarar minna hlaupara þó á að mæta tímanlega. Við íþróttamiðstöðina er nóg af bílastæðum og hægt að geyma fatnað þar.
Eitt þátttökugjald 2.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2009 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt en verða að skrá sig í hlaupið til að fá tíma númer með tímatökuflögu.
Veitt eru peningaverðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og þrjár í kvennaflokki í hvorri vegalengd en einnig eru útdráttarverðlaun þar sem allir eiga sömu möguleika á vinningi.
Verðlaun í 10 km
Verðlaun í 5 km
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.
Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímalega: herjolfur.is
Frí rútuferð í boði fyrir þá sem koma með 10:45 ferðinni, frá bryggju upp í íþróttahús.
Allar upplýsingar um hlaupið eru inn á vefsíðu hlaupsins vestmannaeyjahlaup.is
Þú getur líka fylgst með á facebook
Nánari upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110 eða eyjaskokk@gmail.com