Fara í efni

Unglingalandsmót UMFÍ, skráningarfrestur til miðnættis 26.7

Unglingalandsmót UMFÍ er ein stærsta fjölskyldu- og íþróttahátíð landsins og hefur sameinað börn, ungmenni og fjölskyldur víðs vegar að af landinu frá árinu 1992. Á mótinu keppa þátttakendur á aldrinum 11–18 ára í fjölbreyttum íþróttagreinum yfir daginn, skapa nýjar minningar með vinum og fjölskyldu og njóta stemningarinnar saman á glæsilegum kvöldtónleikum alla verslunarmannahelgina.
Ekki gleyma að skrá þig á Unglingalandsmót 2026
Ekki gleyma að skrá þig á Unglingalandsmót 2026

Skráning er í fullum gangi á Unglingalandsmót UMFÍ sem verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Mikilvægt er að passa að skrá sig á mótið og í greinar í tæka tíð. Opið er fyrir skráningu á mótið til miðnættis á sunnudagskvöld, það er 26. júlí. 

Boðið verður upp á meira en 20 íþróttagreinar á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fer fram á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Heilmikil afþreying verður fyrir alla fjölskylduna og tónleikar á kvöldin. Fjölbreytt dagskrá verður alla dagana og ættu því flestir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Mótið hefst fimmtudaginn 30. júlí og lýkur því á sunnudagskvöldið 2. ágúst.

Á Unglingalandsmótinu er fjöldi greina fyrir keppendur á aldrinum 11-17 ára. Þær eru :

Badminton - Bogfimi - Frisbígolf - Frjálsar íþróttir - Glíma - Golf - Grasblak - Grashandbolti - Hestaíþróttir - Götuhjólreiðar - Júdó - Knattspyrna -Krakkahreysti - Kökuskreytingar - Körfubolti - Motocross - Parasport og Special Olympics - Pílukast - Skák - Stafsetning - Sund og Upplestur.

Liðagreinar 

Þátttakendur í liðagreinum á Unglingalandsmóti UMFÍ geta búið til sín eigin lið í skráningarkerfinu. Þátttakendur þurfa ekki að vera frá sama íþróttahéraði eða sama félagi heldur getur hver sem er sett saman sitt eigið lið. Margir hafa búið til skemmtileg nöfn á liðin sín. Nöfn eins og Bónusgrísirnir, Bakkabræður, Rothöggið og svo má lengi telja.

Eins hafa mörg lið búið til sína eigin búninga. Það gefur mótinu lit og liðunum sjálfum sérstaklega skemmtilegan blæ.

Fyrir alla fjölskylduna

Auk þess er boðið upp á fjölda viðburða fyrir alla fjölskylduna. Aðeins þarf að kaupa miða á mótið fyrir þátttakendur og getur öll fjölskyldan tekið þátt í öðrum viðburðum.

Aðeins þarf að kaupa aðgang að tjaldsvæði fyrir fjölskylduna. Það kostar aðeins 9.900 krónur fyrir alla helgina - og innifalinn er aðgangur að rafmagni.

Á meðal annarra viðburða:

Freestyle danskeppni - Kynning á útiveruspilum frá Færni til framtíðar - Fjöruhlaup fyrir alla fjölskylduna á sandströnd - Íþróttaálfurinn og Solla stirða sjá um Latabæjarfjör - LED badminton - körfuboltadjamm - göngufótbolti - pokavarp - Flag football - Morgunjóga - Hobbíhestar - Danspartí fyrir fjölskylduna - Ofurhetjuhlaup fyrir 10 ára og yngri - Hæfileikasvið - Frisbígolf fyrir alla fjölskylduna og margt fleira!

Meira en bara íþróttir:

Upplýsingar og skráning á Unglingalandsmót

Ertu í vandræðum með skráninguna? Þú getur fundið leiðbeiningar hér: