Fara í efni

Þýðing þarmanna fyrir heilsu og vellíðan

Á sænska heilsuvefnum www.hälsojungeln.com eru birt blogg um nýlegar rannsóknir í heilbrigðismálum.
Þýðing þarmanna fyrir heilsu og vellíðan

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á sænska heilsuvefnum www.hälsojungeln.com eru birt blogg um nýlegar rannsóknir í heilbrigðismálum.

Þar segir að gríðarlegar rannsóknir séu í gangi á þýðingu þarmanna fyrir vellíðan okkar. 

Slíkar rannsóknir séu hins vegar ekki nýlunda fyrir Bengt Jeppsson, sem hafi stundað þær í áratugi. Hann er heiðursprófessor og fyrrum yfirlæknir við háskólasjúkrahúsið á Skáni og við háskólann í Lundi. Hälsojungeln átti við hann stutt viðtal.

Getur þú sagt okkur frá rannsóknum á þýðingu þarmanna fyrir vellíðan fólks?

Við fengum áhuga á þarmaflórunni á níunda áratugnum, þegar við urðum þess vör að sjúklingar, sem lágu á bráðadeildinni með mörg illa starfhæf  líffæri, létust af blóðeitrun þó þeim væru gefin sýklalyf. Margir vísindamenn tókust á við þetta og líka við. Það lá fyrir að bakteríurnar sem ollu blóðeitruninni áttu rætur að rekja til magaþarmanna. Við neyddumst til að grípa til róttækra aðgerða – sýklalyf virkuðu ekki á þær. Svo við prófuðum að snúa þessu við og bættum bakteríum í þarmaflóruna í staðinn.  Við notuðum góðar bakteríur, svo sem mjólkursýrugerla. Þá er að finna í matvælum, til dæmis jógúrt og súrmjólk.

Bakteríustofnar þarmaflórunnar voru illa skilgreindir. Við eyddum því mörgum árum í að reyna að flokka magnið af mjólkursýrugerlum og finna hvers konar mjólkursýrugerlar eru í eðlilegri slímhimnu í þörmunum. Þeir lifa í þörmunum ef allt er eins og það á að vera, en sýklalyfjanotkun bælir þá, einnig lélegt fæði, streita og ýmislegt annað sem á rætur að rekja til nútíma lifnaðarhátta.

„Eftir tíu ára vinnu komumst við að því að ákveðnir mjólkursýrugerlar finnast í miklu magni í heilbrigðum þörmum. Við prófuðum að gefa fólki gerlana í drykkjarformi og öfugt við það sem margir héldu þá, og jafnvel enn þann dag í dag,  gátu vissir mjólkusýrurgerlar lifað af ferðina um meltingarveginn og komið sér þar fyrir. Mjólkursýrugerillinn Lactobacillus plantarum, stóð sig best og við ákváðum að vinna áfram með hann. Hann er að finna í Proviva og Probi Mage ( Probi Mage LP299V gerillinn fæst einmitt hér á landi: innskot þýðanda). Við höfum sýnt fram á það í mörgum rannsóknum að ef menn auka skammtinn sem þeir taka af þessum gerlum er hægt að koma jafnvægi á þarmaflóruna á ný, hafi það raskast. Þannig er hægt að draga úr skaðsemi annarra baktería sem geta valdið sjúkdómum, um leið og slímhimnan í þörmunum styrkist og bólga eða sýking minnkar.

Á hvern hátt geta rannsóknir þínar bætt heilsu almennings?

„Auknar bólgur eru algengar í þeim sjúkdómum sem herja á okkur í dag, til dæmis hjartasjúkdómum, sykursýki, háum blóðþrýstingi, króniskum þarmabólgum, MS, ofnæmi og fleirum. Bólga myndast oft í þörmunum vegna þess að . . . LESA MEIRA