Mottumarshlaupið fór fram í fyrsta sinn árið 2024 og síðan þá hefur hlaupinu vaxið fiskur um hrygg enda hlaupaleiðin einstök, hröð og aðgengileg fyrir alla. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum í fyrra, en hlaupið FRÍ vottað sem gefur því tiltekinn gæðastimpil og er stefnan tekinn á enn meiri fjölda í ár.
Hlaupið verður haldið fimmtudaginn 19. mars kl. 18:00 frá Fagralundi í Kópavogi en hlaupaleiðin liggur um Fossvogsdalinn. Dagskráin hefst kl. 17:30 með léttri upphitun og stemmingu en hlaupið verður ræst kl. 18:00. Hlaupaleiðin er 5 km braut, löglega mæld og vottuð af Frjálsíþróttasambandi Íslands. Þrátt fyrir löglega keppnisbraut þarf enginn að vera ragur við að mæta því allir eru velkomnir og það má ganga og skokka, allt eftir því sem hentar hverjum og einum. Markmiðið okkar er eitt, að hreyfa okkur í góðum félagskap og samveru og sýna verkefninu stuðning.
Skráningargjald er 5.000 krónur fyrir 12 ára og eldri (Mottumarssokkar fylgja með) og 1.500 krónur fyrir börn 11 ára og yngri (Mottumarsbuff fylgir með).
Hlaupagögn verða afhent frá 2. mars hjá Krabbameinsfélaginu, Skógarhlíð 8, mánudaga – fimmtudaga á milli kl. 09:00 – 16:00 og á föstudögum á milli 09:00 – 14:00. Einnig til kl. 16:00 á hlaupdegi.