Fara í efni

Kynningarfundur um lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum

Mánudaginn 6. júní 2016, kl. 14:00–16:00, stendur Embætti landlæknis fyrir kynningarfundi um lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Kynningarfundur um lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum

Mánudaginn 6. júní 2016, kl. 14:00–16:00, stendur Embætti landlæknis fyrir kynningarfundi um lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum í  Safnahúsinu við Hverfisgötu.

Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan þjóðarinnar og áhrifaþætti þeirra. Birting lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum á Íslandi er liður í því að veita yfirsýn yfir lýðheilsu í hverju umdæmi fyrir sig í samanburði við landið í heild.

Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda sveitarfélögum og heilbrigðisþjónustu að greina stöðuna í umdæmunum, finna styrkleika og veikleika og skilja þarfir íbúanna þannig að þau geti unnið saman að því að bæta heilsu þeirra og líðan.

Dagskrá:

Ávarp: Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra

Hvers vegna lýðheilsuvísar? Birgir Jakobsson landlæknir

Lýðheilsuvísar tengdir lifnaðarháttum: Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis hjá 
Embætti landlæknis

Lýðheilsuvísar tengdir heilsu og sjúkdómum: Sigríður Haraldsdóttir, sviðsstjóri  heilbrigðisupplýsinga hjá Embætti landlæknis

Lýðheilsuvísar í Reykjavík: Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri


Pallborðsumræður

Í pallborði verða: Birgir Jakobsson landlæknir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri, Sigríður Haraldsdóttir sviðsstjóri, Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.

Fundarstjóri: Vilborg Ingólfsdóttir, skrifstofustjóri hjá velferðar-
ráðuneytinu

Kynningarfundurinn er öllum opinn. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Skoða nánar: Dagskrá kynningarfundarins (PDF)


Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri
Sigríður Haraldsdóttir sviðsstjóri

Af vef landlæknis.