Fara í efni

Vanilluís - fyrir jólin frá Sollu í Gló

Gómsætur vanilluís sem hentar fyrir grænmetisætur og vegan.
Gómsætur og girnilegur
Gómsætur og girnilegur

Vanilluís - gómsætur og hentar fyrir grænmetisætur og vegan. Frá Sollu í Gló.

Hráefni: 

3 dl kasjúhnetur, sem búnar eru að liggja í bleyti í 2 klst

2 ½ dl möndlumjólk

¾ dl agavesýróp eða önnur sæta

1-2 tsk vanilla, duft eða dropar

½ dl kókosolía, fljótandi

¼ tsk sjávarsalt

Leiðbeiningar:

Byrjið á að setja kasjúhnetur, möndlumjólk, agavesýróp og vanillu í blandarann og blandið vel, best að láta þetta verða alveg silkimjúkt.

Bætið kókosolíunni og saltinu útí og blandið smá stund í viðbót.

Setjið annað hvort í ísvél (og fylgið leiðbeiningunum á vélinni) eða í silikonform og frystið.

Ef þið notið silikonform en ekki ísvél er gott að hræra í blöndunni annað veifið á meðan hún er að frostna.

Einnig er þetta upplagt til að setja í íspinnaform. 

Heimild: nlfi.is