Það er alltaf gott að eiga hollt og gott „snakk“ til að grípa í eða taka með sér sem millibita til vinnu.  Þessar orkukúlur rúllar þú upp á innan við 5 mínútum svo að tímaleysi er enginn afsökun.   
				
										
					
						 
													
								Gott að eiga til að grípa í
							
											 
				 
										
									Það er alltaf gott að eiga hollt og gott „snakk“ til að grípa í eða taka með sér sem millibita til vinnu. 
Þessar orkukúlur rúllar þú upp á innan við 5 mínútum svo að tímaleysi er enginn afsökun.
 
 
 
  
Hráefni
- 1 ½ bolli þurrkuð epli
- ¼  bolli döðlur (steinlausar)
- ½ msk hunang (eða annað sætuefni)
- 1 tsk nutmeg
- 2 msk kanill
- ¼ bolli af ristuðum pekanhnetum
Aðferð
Byrja á að setja eplin, döðlurnar og hunangið í matvinnsluvél eða góðan blandara og unnið vel saman.  Síðan er nutmeg, kanill og pekanhnetum bætt við og unnið þar til að hneturnar hafa brotnað niður í hæfilega stærð fyrir hvern og einn.  Þegar blandan er tilbúin er best að taka matskeið og rúlla þessu á milli handanna og kannski betra að væta aðeins hendurnar með vatni svo að þetta festist ekki við þig.  Sett í hæfilegt ílát og þú getur geymt þetta uppundir eina viku í ísskápnum.   
Tengt efni: