Fara í efni

Gleikjó - Öðruvísi sleikjó

Gleikjó - Öðruvísi sleikjó

Gleikjó - Öðruvísi sleikjó fyrir sykurlausa sumargleði

1Gúrka

Allskonar ávextir eftir smekk hvers og eins. Ég notaði ananas, mangó, grænt epli, kantilópu og blóðappelsínu.

Tannstönglar

Líka sniðugt að nota vatnsmelónu, appelsínu, peru og banana.

Gúrka skorin í ca 1cm þykkar sneiðar. Ef þú átt hringjasett þá er mjög gott að nota það, ef ekki þá er líka hægt að nota mjóa partinn af trekt. Fyrst er gúrkan skræluð, ef vill, líka gaman að hafa skrælið á. Ávextir sem á að nota eru skornir í ca 1 ½ cm þykkar sneiðar. Kjarninn er stunginn út úr gúrkunni. Nota sama útstungu hring til að stinga út hringi af ávöxtunum. Ávaxtahringjunum er því næst þrýst inní gúrkuna og tannstöngull notaður til að festa sleikjóinn saman. Mjög sniðugt er að skera afskurðina af öllum ávöxtunum í ávaxtasalat!

Svo er bara að passa að borða ekki alla í einu :)

Höfundur uppskriftar:

Ylfa Helgadóttir