Fara í efni

Silkimjúkar súkkulaðivöfflur með ferskum jarðarberjum og þeyttum rjóma

Sú list að baka ljúfar laugardagsvöfflur er einföld og fljótleg, sérstaklega ef notast er við tilbúna þurrefnablöndu og ekki úr vegi að krydda vöfflurnar örlitið með súkkulaðiviðbót, sem geta dimmu í dagsljós breytt á kaffiborðinu!
Silkimjúkar súkkulaðivöfflur með ferskum jarðarberjum og þeyttum rjóma

Sú list að baka ljúfar laugardagsvöfflur er einföld og fljótleg, sérstaklega ef notast er við tilbúna þurrefnablöndu og ekki úr vegi að krydda vöfflurnar örlitið með súkkulaðiviðbót, sem geta dimmu í dagsljós breytt á kaffiborðinu!

 

Aðventan er ljúf en vindasöm á Fróni og naprir vindar næða fyrir utan að morgni, grána tekur á gamla Íslandi og regnið bylur á gluggunum. Þrátt fyrir kólnandi veðurfar er aðventan falleg, notarleg og sérstaklega þegar kalt er úti og við sitjum inni við með hlýtt teppi og heitan drykk í hönd. Jafnvel er ekkert betra en nýbakaðar vöfflur á slíkum dögum, sem setja punktinn yfir I-ið.

Sú list að baka ljúfar laugardagsvöfflur er einföld og fljótleg, sérstaklega ef notast er við tilbúna þurrefnablöndu og ekki úr vegi að krydda vöfflurnar örlitið með súkkulaðiviðbót, sem geta dimmu í dagsljós breytt á kaffiborðinu. Allt sem til þarf er örlítil viðbót af dökku súkkulaði og kakódufti sem ætlað er fyrir bakstur, en vöfflurnar eru bakaðar eins og venja er.

Hér fer uppskrift að dásamlegum súkkulaðivöfflum:

*Uppskriftin nægir í átta vöfflur

1 poki TORO vöfflublanda

4 dl vatn

75 bráðið smjör

Smjör til að baka vöfflurnar

100 gr brætt (dökkt) súkkulaði

2 msk bökunarkakó

*Ef þú vilt stækka uppskriftina er ágætt að nota tvo poka af TORO vöfflublöndunni í uppskriftina og tvöfalt meira brætt súkkulaði og vökvamagn – allt eftir leiðbeiningum á pakkanum.

Tillögur að meðlæti:

Hefðbundið meðlæti: Þeyttur rjómi og góð ávaxtasulta

Lúxusmeðlæti: Þeyttur rjómi og fersk, smátt skorin ber ~ jarðarber og bláber t.d.

Vöfflur sem eftirréttur: Ís, fersk, smátt skorin ber og fínsaxað súkkulaði

Svona förum við að:

Hrærið vatn og bráðið smjör saman við innihald TORO vöfflupokans og þeytið / hrærið þar til blandan er orðin slétt og mjúk ásýndar. Saxið / rífið súkkulaðið smátt og bætið út í blönduna ásamt bökunkarkakóinu. Þeytið allt saman.

Hitið vöfflujárnið, smyrjið vel með smjöri (eða bökunarspreyi) og gætið að því að baka vöfflurnar hæfilega lengi, svo súkkulaðið brenni ekki við meðan á bökunartíma stendur. Leggið nú vöfflurnar á bökunarrist og látið standa í örskamma stund, því þannig verða þær stökkari (ef þú raðar þeim beint upp í stafla þá verða þær mýkri).

Berið fram með uppáhaldsmeðlætinu og njótið vel!

ATH: Ef þú eða einhver í fjölskyldu þinni er með óþol fyrir glúteni, er tilvalið að velja glútenlausu vöfflublönduna frá TORO ~ gleðilega aðventu!

Uppskrift frá vef kvon.is