Fara í efni

Ris a'lmande

Ris a´lmande
Ris a´lmande

Hér er ljúffeng uppskrift af Ris a´lmande sem gerð er úr kókosmjólk eða rísrjóma

 

Hráefni:

1,5 dl hrísgrjón, helst grautargrjón

1 l vatn

salt á hnífsodd

1-2 msk sykur

1 stk vanillustöng

1,5 dl kókosmjólk eða hrísgrjónarjómi / rísrjómi

saxaðar möndlur

Aðferð:

1. Skerið vanillustöngina langsum með hnífi, opnið hana og skrapið vanillufræin út. Geymið stöngina.

2. Setjið vatnið, hrísgrjónin og tóma vanillustöngina í pott og látið sjóða þar til næstum fullsoðið.

3. Takið vanillustöngina úr pottinum.

4. Bætið vanillufræjunum, salti, sykri og kókosmjólk eða rísrjómanum saman við og látið sjóða þar til hrísgjónin eru fullsoðin og grauturinn þykkur.

5. Hrærið söxuðum möndlum saman við og berið fram með kirsuberjasultu eða kirsuberjasósu