Fara í efni

Lime avókadó hrákaka

Valdís Sigurgeirsdóttir heldur úti dásamlegri síðu sem hún nefnir Ljómandi.is Valdís ákvað í byrjun árs 2014 að minnka sykurinn til muna ásamt glútenmagni fyrir fjölskylduna sína. Hún galdrar fram yndislegar uppskriftir sem hún leyfir okkur að njóta með sér. En þessi kaka kemur úr smiðju Jónu vinkonu hennar.
Dásemd frá Ljómandi.is
Dásemd frá Ljómandi.is

Valdís Sigurgeirsdóttir heldur úti dásamlegri síðu sem hún nefnir Ljómandi.is 

Valdís ákvað í byrjun árs 2014 að minnka sykurinn til muna ásamt glútenmagni fyrir fjölskylduna sína.  Hún galdrar fram yndislegar uppskriftir sem hún leyfir okkur að njóta með sér.

En þessi kaka kemur úr smiðju Jónu vinkonu hennar. 

  

Lime avókadó hrákaka

Botn:

80 g kókosmjöl

100 g möndlur eða heslihnetur eða mix af báðu

250 g döðlur

ögn cayennepipar

smá himalayan salt

Allt sett í matvinnsluvél og mixað saman, sett í kökuform og inn í frysti á meðan þið gerið fyllinguna.

Fylling:

2-3 avókadó

¾  bollar hlynsíróp

¼  bolli lime safi

Allt set í blandara og hellt svo yfir botninn.

Geymið í frysti í amk. klukkustund eða þar til kakan er frosin. Hægt er að skreyta með kókosflögum, rifnu súkkulaði eða kíví.

Þessi kaka er mjög bragðgóð en það er betra að bera hana fram kalda og hún getur ekki staðið mjög lengi á borði. Þessi kemur úr smiðjunni hennar Jönu vinkonu.

 

 

 

 

 

Tengt efni: