Fara í efni

Himneskt sælgæti frá mæðgunum

Dásamlegt sælgæti.
Himneskt sælgæti frá mæðgunum

Einstaka sinnum hellist yfir okkur mjög ákveðin tilfinning: sterk löngun í svo svakalega gómsætt sælgæti að við hreinlega roðnum við tilhugsunina. Kannist þið við tilfinninguna?

Þetta sælgæti er svolítið þannig. Stökkur en samt smá seigur botn, dúnmjúk karamella og ristaðar möndlur, allt hjúpað með ljúffengu dökku súkkulaði. Himnasæla!

Þetta sælgæti er vegan og glútenlaust og hentar því vel þeim sem kjósa að lifa á jurtafæði eða eru með glútenóþol. (En athugið að það er ekki dulnefni fyrir "svo súper hollt að það má borða í staðinn fyrir grænmeti").

Við veljum alltaf gott hráefni úr lífrænni ræktun þegar það er hægt, líka þegar við útbúum sætindi. Með því styðjum við jákvæða þróun í átt að umhverfisvænni ræktun. Við völdum fairtrade vottað súkkulaði fyrir hjúpinn, því okkur finnst líka mikilvægt að styðja góðan aðbúnað þeirra sem vinna við kakó framleiðsluna.

 

En aftur að sælgætinu. Sú eldri bakaði vegan marengsdropa úr "aquafaba" til að nota sem botna. Þetta er ótrúlega skemmtileg aðferð þar sem soðið af kjúklingabaunum er notað á svipaðan hátt og eggjahvítur í marengs gerð. (Við gerðum vegan pavlóvur með chili-jarðaberjum í fyrrasumar með þessari aðferð, þið getið lesið meira um aquafaba í færslunni hér).

Við skárum svo toppana af dropunum og settum karamellu og möndlur inní. Og hjúpuðum með dökku súkkulaði!

Útkoman: algjörlega himneskir sælgætismolar sem fá hörðustu töffara til að roðna!

Uppskriftin

Botnarnir

vökvinn úr 1 krukku af lífrænum kjúklingabaunum (aquafaba)
1/3 tsk cream of tartar 
1 tsk lakkrísduft eða vanilluduft 
3 msk lífrænn hrásykur, malaður í kryddkvörn  

  1. Setjið vökvann úr kjúklingabaunakrukkunni í hrærivél ásamt cream of tartar, lakkrísdufti/vanilludufti og þeytið á hæsta hraða í 10-15 mín.
  2. Bætið möluðum hrásykrinum út í, 1 tsk í einu og látið þeytast áfram á hæsta hraða í 5 mín í viðbót.
  3. Hitið ofninn í 100°C.
  4. Látið bökunarpappír á ofnplötu.
  5. Setjið deigið í sprautupoka og sprautið litlum kökum á bökunarpappírinn, passið að hafa bil á milli þar sem þær stækka í ofninum.  
  6. Bakið í 1 klst og lækkið þá hitann í 90°C og klárið að baka í 3 klst.
  7. Slökkvið á ofninum og látið standa í 1-2 klst eða þar til botnarnir hafa kólnað. 

Karamellan

1 dl hlynsýóp 
½ dl kókosolía 
½ dl hnetusmjör eða möndlusmjör
¼ tsk sjávarsalt

Allt sett í blandara og blandað þar til alveg kekklaust

Samsetningin

Fyllingin: 
1 dl þurrristaðar möndlur, smátt saxaðar 
2 dl karamella 
nokkur hindber (eitt í hvern mola, ef vill)

Hjúpurinn:
100g lífrænt dökkt súkkulaði, fairtrade

  1. bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði
  2. hrærið karamellunni saman við möndlurnar
  3. skerið toppinn af hverri köku fyrir sig
  4. setjið 1 væna tsk af karamellu (magnið fer eftir stærð kökunnar) og 1 hindber
  5. setjið inn í frysti í 15 mín áður en súkkulaðið er sett ofan á
  6. setjið um 1 msk af súkkulaði ofan á hverja köku
  7. setjið inn í frysti í smá stund áður en borið fram.
  8. Þessar kökur geymast best í frysti eða kæli

... þegar við prófuðum að pota einu hindberi í hvern mola skaust himnasælan upp í næstu vídd!