Fara í efni

Dásamlegar Heilhveiti Pönnukökur

Flott uppskrift af pönnukökum.
Dásamlegar Heilhveiti Pönnukökur

Ótrúlega góðar pönnukökur úr KORNAX heilhveiti.

Gott að skella í þessar um helgina. 

Uppskrift:

4 dl KORNAX heilhveiti
1 msk sykur
1/2 tsk salt
1 tsk lyftiduft 
2 egg Nesbú
1 1/2 tsk vanilludropar
60 gr smjörlíki (smjör)
Mjólk eftir þörfum c.a. 1 ltr.

Aðferð:

smjör brætt í potti, egg og sykur pískað létt saman.
Þurrefnum blandað saman við pískað létt, mjólkinni er hellt út í smátt og smátt (kekkjalaust)
að lokum er bræddu smjörlíki (smjöri) blandað saman við.
steikið á pönnukökupönnu.

Þessar pönnsur eru virkilega góðar með ísköldu glasi af mjólk.

Njótið vel!