Fara í efni

Steiktar rækjur með MANGÓ salsa og blómkáls-kókós grjónum

Rækjur og grjón fá smá suðræna yfirhalningu í þessum 400 kaloríu rétti.
Steiktar rækjur með MANGÓ salsa og blómkáls-kókós grjónum

Rækjur og grjón fá smá suðræna yfirhalningu í þessum 400 kaloríu rétti.

Í stað hrísgrjóna notum við blómkál og kókósmjólk.

Og svo toppar þetta allt saman hið dásamlega MANGÓ SALSA.

Flottur réttur sem er ríkur af trefjum og á við í hádegi eða kvöldmat.

Uppskrift er fyrir fjóra.

Hráefni:

1 stórt mangó – skorið niður í bita

1 avókadó – skorið í bita

¼ bolli af saxaðri rauðri papriku

1 meðal stór jalapenó – saxa afar fínt

1 skallot laukur – skorin í sneiðar

3 msk af söxuðu kóríander

3 msk af fljótandi kókósolíu

1 ½ msk af lime safa – plús báta til að bera fram með réttinum

½ tsk af góðu salti

4 bolla af blómkálsblómum – ekki hafa mikið af stilknum

6 msk af fitulausri kókósmjólk

2 msk af ristuðum kókósflögum – ósætar

500 gr af rækjum – hreinsa þær

½ tsk af chillí dufti

½ tsk af cumin í dufti

Leiðbeiningar:

Mangó salsa:

Blandið saman mangó, avókadó, papriku, jalapenó, skallot lauk, kóríander og 1 msk af olíunni, lime safa og ¼ tsk af salti í blandara og dúndrið í gott salsa. Það á að vera þykkt. Ef þér finnst það of þykkt þá má nota appelsíusafaskvettu saman við.

Takið blómkál og setjið í matarvinnsluvél og látið vinnast þar til bitar eru ekki stærri en hrísgrjón.

Takið góða pönnu (nonstick skillet) og hitið á henni 1 msk af olíunni, kókósmjólk og restinni af saltinu. Hafið hitann háann.

Bætið nú blómkálsgrjónunum á pönnuna og hrærið af og til svo ekkert festist nú við pönnu. Grjónin eiga að verða mjúk – þetta tekur svona 5 mínútur.

Færið blómkálsgrjón yfir í stóra skál og hrærið kókósflögum saman við.

Þurrkið pönnuna með húsbréfi.

Skutlið rækjum í skál ásamt chillí dufti og cumin. Hristið saman.

Bætið rest af olíunni á pönnuna og hellið rækjum saman við.

Eldið á meðal háum hita, hrærið af og til. Rækjur eru fljótar að eldast, tekur um 3-4 mínútur. Fer eftir því hversu stórar þær eru.

Berið svo fram með blómkálsgrjónum og mangó salsa. Einnig er ofsalega gott að hafa ferskt salat með og nota þá einnig mangó bita í salatið.

Njótið vel!