Fara í efni

Æðislegt kjúklingasalat með appelsínum, fetaosti, goji berjum og mangódressingu

Þetta æðislega kjúklingasalat er bragðmikið og skemmtileg tilbreyting frá hinu hefðbundna kjúklingasalati. Ekki skemmir fyrir hvað mangódressingin er æðislega fersk og góð með. Uppskrift er hér að neðan:
Geggjað kjúklingasalat
Geggjað kjúklingasalat

Þetta æðislega kjúklingasalat er bragðmikið og skemmtileg tilbreyting frá hinu hefðbundna kjúklingasalati.

Ekki skemmir fyrir hvað mangódressingin er æðislega fersk og góð með. Uppskrift er hér að neðan.

 

 

 

Uppskrift: 

1/2 poki af rucola salati
1/2 poki af spínati 
1 appelsína
1 tómatur
1 handfylli af Goji-berjum
1/2 krukka af fetaosti 
2 kjúklingabringur 

Aðferð: 

1.Skerið kjúklingabringurnar í litla strimla og veltið upp úr smá salti og sítrónupipar. 
2.Steikið kjúklingabringurnar á miðlungshita uppúr smá olíu. 
3.Skerið appelsínuna og tómatinn í litla “munn“bita. 
4.Blandið saman salatinu, appelsínunum, goji berjunum og fetaostinum í stóra skál. 
5.Leyfið kjúklingnum að kólna aðeins og bætið honum svo út í skálina. 

Mangódressing: 

1/2 dolla af sýrðum rjóma 
1/2 dolla af grískri jógúrt
2 matskeiðar af mango chutney 
smá sítróna (kreist)
1/2 teskeið af chilikornum

Verði ykkur að góðu! 

Birt í samstarfi við

 

Tengt efni: