Fara í efni

Ómótstæðilegar rjómabollur

Ómótstæðilegar rjómabollur

Senn rennur bolludagurinn í hlað og hér erum við með ómótstæðilega uppskrift af bollum. 

Uppskrift gefur 8 - 10 bollur.

Hráefni:

100 g smjör

2 dl vatn

2 msk sykur (má sleppa)

110 g KORNAX hveiti (rauður poki)

3 stór egg NESBÚ (eða fjögur lítil)

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C.

Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 - 3 mínútur áður en hveitið er sett út í). Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman. Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum. Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hætta á að bollurnar falli.  

Jarðarberjafylling

1 askja jarðarber (10 - 12 stk)

4 dl rjómi

2 tsk. flórsykur

Aðferð:

  1. Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli.
  2. Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin
  3. Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif.

Nutella - og bananarjómi

Þetta er fyllingin sem þið óskið að taki aldrei enda, hún er of góð til að vera sönn. (en þetta er engu að síður sönn saga)

4 dl rjómi

1 banani

3 msk. Nutella

 Aðferð:

  1. Þeytið rjóma.
  2. Maukið banana og Nutella saman með töfrasprota eða stappið vel saman með gaffli.
  3. Blandið bananablöndunna varlega saman við rjómann með sleif.

Uppskrift fengið af síðu evalaufeykjaran.is